Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

21.5.2007

Starfsdagur fulltrúaráðs

Þriðjudaginn 15. maí mætti glæsilegur hópur fulltrúa í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar til starfa á starfsdegi. Markmiðið með þessum fundi var að fulltrúar kæmu að því að móta stefnu félagsins til næstu ára. Klukkan 10 mætti Ragna Benidikta Garðarsdóttir frá Félagsvísindastofnun HÍ og kynnti fyrstu niðurstöður Kjara- og þjónustukönnunar sem félagið réðst í að láta gera í febrúarmánuði þessa árs. Niðurstöður voru hinar áhugaverðustu. Garðar Hilmarsson formaður félagsins kynnti samantekt af morgunverðarfundum með félagsmönnum en þar var tekinn púlsinn á því hvaða þjónustu og störf  félagsmenn telji að félagið eigi að sinna.  Eftir hádegi skipti fólk sér niður í hópa sem það hafði þegar skráð sig í og fjallaði um hvernir hinum ýmsu málaflokkum væri best fyrir komið í starfinu. Málefnin sem hóparnir fjölluðu um voru; Ímynd, kynninga og þjóðfélagsmál, fræðslumál, fulltrúaráðið, kjaramál, orlofsmál, starfsmat - upplýsingar til félagsmanna og þjónusta félagsins.

starfsdagur fulltrúaráðs Hádegismatur og kaffitími er ekki síður mikilvægir til þess að bera saman bækur sínar.
starfsdagur fulltrúaráðs Einn af hópunum fjallaði um orlofsmál innan félagsins.
starfsdagur fulltr. 2 Kjaramálahópur að störfum.
starfsdagurfulltrúaráðs 1 Starfsmatshópur að störfum.

 




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English