
Vika símenntunar verður haldin 24.-30. september 2007. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2007 er lögð áhersla á að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun og hvatt til þess að huga sérstaklega að læsi og lestrarörðugleikum á vinnustað.
Miðvikudagurinn 26. september er árlegur símenntunardagur í fyrirtækjum og stofnunum. Fyrirtæki eru hvött til að tileinka þann dag fræðslumálum, t.d. með því að kynna starfsmönnum fræðslustefnu fyrirtækisins, bjóða upp á námskeið eða fá kynningar frá fræðsluaðilum eða stéttarfélögum.
Fræðsluaðilar, fyrirtæki, stofnanir og allir þeir sem koma að símenntun eru hvattir til að nýta sér verkefnið til hvatningar og kynningar á því símenntunarstarfi og starfsþjálfun sem fram fer hér á landi. Jafnframt biðjum við fyrirtæki, félög og stofnanir að senda upplýsingar á tölvupósti til verkefnastjóra, um það sem gert er í tilefni af viku símenntunar.
Menntamálaráðuneytið stendur fyrir viku símenntunar en framkvæmd verkefnisins er í samstarfi við símenntunarstöðvarnar á landsbyggðinni og Mími-símenntun á höfuðborgarsvæðinu. Vika símenntunar er stórt og árvisst verkefni þar sem fjölmargir samstarfsaðilar eru kallaðir til samstarfs um að vekja athygli á mikilvægi símenntunar og hvetja fólk til að leita sér þekkingar. Meðfylgjandi er texti og merki vikunnar sem nota má til kynningar.