27. september til 7. október 2007
Fríkirkjuvegur 1, 101 Reykjavík
Sími: 411 7055
info@filmfest.is, www.riff.is
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram í fjórða sinn í lok septembermánaðar. Hátíðin hefur á skömmum tíma orðið að lykilviðburði í dagatali haustsins og á síðasta ári sóttu um 15.000 Íslendingar sýningar hátíðarinnar. Dagskráin samanstendur af nærri hundrað myndum auk fjölda skemmtilegra hliðarviðburða. Ævistarf R.W. Fassbinders, Hönnu Schygullu og Aki Kaurismäki verður í forgrunni, og sem fyrr munu fjölmargar myndir lítt þekktra en spennandi leikstjóra keppa um titilinn „uppgötvun ársins“ í flokknum Vitranir. Þar fyrir utan verður breitt úrval leikinna og heimildarmynda frá öllum heimshornum, en búast má við að myndir hátíðarinnar komi frá a.m.k. 30 löndum.
Það er mjög ólík reynsla að sækja kvikmyndahátíð og að sækja hefðbundna kvikmyndasýningu. Myndirnar eru oft mjög ólíkar því sem gengur og gerist, og alltaf einstök upplifun. Hver mynd er einungis sýnd þrisvar sinnum og því um að gera að tryggja sér miða með góðum fyrirvara. Í mörgum tilfellum eru leikstjórar viðstaddir sýningarnar.
Við viljum bjóða starfsmannafélögum að kaupa miða handa starfsfólki sínu á sérstökum afsláttarkjörum. Sýningar á kvikmyndahátíð er vel hægt að bjóða á í tengslum við máltíð á veitingastað, svo dæmi sé tekið.
Ef fjöldinn fer yfir 20 manns getum við boðið 15% afslátt af stökum miðum sem kosta 900 kr. án afsláttar og af klippikortum á 8 myndir sem kosta 4500 án afsláttar. og pössum sem kosta 6000 krónum án afsláttar sem gildir á allar myndir.
Best er að skráning fari fram á vinnustaðnum fyrirfram og hátíðin taki svo frá umbeðið magn miða.
Hafðu endilega samband og fáðu nánari upplýsingar um tilboðin. Sýningarnar eru fáar og sætin stundum fá, svo því fyrr sem miðarnir eru teknir frá, því betra.
Katlóg hátíðar má hala niður hér: http://www.filmfest.is/RIFF_Dagskra_FINAL_LORES.pdf
Með kveðju,
Hrönn Marinósdóttir Garðar Stefánsson
hátíðarstjórnandi verkefnastjóri
Hronn@filmfest.is gardar@filmfest.is
s.411 7054 s. 411 7056