Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

26.9.2007

Alþjóðasamtök starfsmanna í almannaþjónustu


Fulltrúar BSRB á þinginu. F.v. Árni Stefán Jónsson, Þuríður Einarsdóttir og Ögmundur Jónasson.

28. þing Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, Public Services International, hófst í Vínarborg í gær, 24. september. Samtökin fagna 100 ára afmæli sínu um þessar mundir. Þingið stendur til 28. september. Á þinginu eru komnir saman 1500 fulltrúar frá öllum heimshornum og eru fulltrúar BSRB þar á meðal.

Fjölmörg mál eru á dagskrá þingsins sem PSI mun væntanlega leggja til grundvallar starfi sínu næstu fimm árin. Búist er við að þingið ítreki andstöðu sína gegn einkavæðingu á helstu stoðþjónustu samfélagsins svo sem heilbrigðisþjónustu, orkumálum eða málefnum veitustofnana. Herferð PSI í þágu öflugrar almannaþjónustu fyrir alla verður áfram haldið. Þá er mikilvægt að vinna markvisst að aukinni virðingu fyrir réttindum launafólks og samtökum þess. Einnig hvetur PSI samtök launafólks í hinum ríkari löndum til að sýna aukna samstöðu með verkalýðshreyfingunni í þróunarlöndunum t.d. með því að styrkja menntun, starfsemi og verkefni til eflingar veikburða samtökum þar.

Nánar má sjá um helstu mál þingsins HÉR og HÉR.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English