Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

27.9.2007

Hádegisfyrirlestur Rannsóknarstofu vinnuverndar

Gyða Margrét Pétursdóttir félags- og kynjafræðingur og doktorsnemi í Háskóla Íslands heldur fyrirlesturinn Skreppur og Pollýanna: Um ólíka möguleika og sýn kynjanna á samræmingu fjölskyldulífs og atvinnu í hádegisfyrirlestrarröð Rannsóknastofu í vinnuvernd.

Fyrirlesturinn verður föstudaginn 28. september kl. 12.15 - 13.15 í stofu 201 í Lögbergi, Háskóla Íslands.

Gyða Margrét byggir fyrirlesturinn á rannsókn sem hún er að vinna að og er hluti af doktorsverkefni hennar. Í rannsókninni eru skoðaðir sex vinnustaðir á vegum Reykjavíkurborgar. Gerðar voru þátttökuathuganir, tekin viðtöl við stjórnendur og starfsfólk af báðum kynjum sem hafa börn á sínu framfæri. Valdir voru vinnustaðir með hliðsjón af sérhæfingu starfa og var kynjasamsetning þeirra mismunandi. Markmið rannsóknarinnar var að leggja mat á árangur borgarinnar í málaflokknum og hvort og þá hvernig fjölskyldustefnan er útfærð innan ólíkra vinnustaða. Helstu niðurstöður sýna áhugavert samspil kynjabreytunnar og eðli starfanna. Möguleikar þeirra sem eru sérfræðimenntaðir á samræmingu fjölskyldulífs og atvinnu eru að jafnaði meiri en hinna. Það stafar af því að störf þeirra eru sjaldnar háð ákveðinni viðveru. Nýting möguleikanna er þó minni en ella vegna krafna í starfi. Vinna þeirra sem ekki hafa sérfræðimenntun er oft á tíðum staðlaðri, hún er ekki bundin við ákveðin verk heldur viðveru í tiltekinn tíma. Þarna er þó augljós kynjamunur. Karlar njóta almennt meira sjálfræðis í starfi, meiri hreyfanleika og sveigjanleika en konur.

Fh. Rannsóknastofu í vinnuvernd




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English