Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

29.11.2007

Námstilboð fyrir ritara og skrifstofustjóra í skólum

Skólaritara og skrifstofustjóranám
kynning
 

Skólaritara og skrifstofustjóranám
Framvegis – miðstöð um símenntun

Námstilboð fyrir ritara og skrifstofustjóra í grunn- og framhaldsskólum



Námið, sem er í samvinnu Framvegis og Verslunarskóla Íslands, er blanda af staðbundnu námi í Verzlunarskólanum og fjarnámi í WebCT kerfinu, en skólinn hefur góða reynslu af því og það hefur nýst vel í fullorðinsfræðslu á vegum hans. Námið er einingabært (22 einingar) þannig að þeir sem hyggjast leggja stund á frekara nám geti lagt fram þessar einingar með sér. Gert er ráð fyrir að nýr hópur hefji nám í janúar 2008 með fyrirvara um næga þátttöku.
Námið dreifist á þrjár annir. Námið verður blanda af staðbundnum lotum og fjarnámi. Námið skiptist þannig:

Námsefni:

TÖN 103 Ritvinnsla, excel og tölvupóstur
Reynt er að mæta þörfum hvers og eins eftir því hvaða færni viðkomandi býr þegar yfir í ritvinnslukerfinu Word og öðrum tölvuforritum sem áfanginn tekur á. Vikið verður að margs konar uppsetningu bréfa og skýrslna, umbroti bæklinga, skjalavistun í tölvum og skjalavistun yfirleitt. Kennd verða tiltekin atriði í Excel, m.a. áætlanagerð. Þá verður kennd meðferð og flokkun tölvupósts.

SAM 103 Samskipti á vinnustað og við viðskiptavini, samtalstækni
Fjallað er um samskipti á vinnustað og hvernig tekið er á móti viðskiptavinum og vikið að vítum sem varast ber. Fjallað er um ýmsar vinnustaðakenningar og lausn ágreiningsmála. Vikið verður að samtalstækni.

STJ 101 Stjórnun
Fjallað er um helstu stjórnunarkenningar, stjórnunaraðferðir og hversu best verður hagað stjórn í skóla.

BÓK 113
Fjallað um bókfærslu og áætlnagerð með því markmiði að fólk geti lesið úr reikningum stofnunar eða fyrirtækis, fært bókhald og merkt reikninga o. fl. þess háttar sem tengist traustu bókhaldi.

LÍB 101 Líkamsbeiting og vinnustellingar.

SKY 101 Skyndihjálp. Undirstöðuatriði skyndihjálpar kennd og viðhaldsþjálfun á þriggja ára fresti.

SIÐ 103 Siðfræði
Fjallað um helstu gildi í öllum mannlegum samskiptum, vandamál sem upp koma, trúnaðarskyldu og sérstaklega fjallað um þá togstreitu sem getur skapast vegna upplýsinga sem starfsmenn komast á snoðir um, virðingu fyrir einstaklingnum o.fl.

ÍSL 173 Íslenska til bréfa- og skýrsluskrifa
Farið er í almenna uppsetningu bréfa og skýrslna og margvísleg frágangs- og framsetningaratriði þjálfuð.

ENS 373 Viðskiptaenska og ritað mál
Markmiðið er að efla orðaforða og þar með læsi á ensku sem og ritun bréfa á málinu.

UMH 101 Umhverfisfræði
Stefnumótun í umhverfisfræði, vistvæn umgengni, endurvinnsla.

Nánari upplýsingar:
Framvegis miðstöð um símenntun.
Síðumúli 6 108 Reykjavík
Sími 581 4914 / Rafpóstur: framvegis@framvegis.is
www.framvegis.is




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English