Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

27.5.2008

Ýmislegt

Dr. Allyson Pollock prófessor við háskólann í Edinborg í Skotlandi er með morgunverðarerindi hjá BSRB fimmtudaginn 29. maí kl. 8.15 - 10.00. Dr. Pollock veitir forstöðu sérstakri rannsóknarstofnun við háskólann í Edinborg sem hefur það verk með höndum að kanna afleiðingar mismunandi skipulagsforma í heilbrigðisþjónustunni. Stofnunin heitir The Centre for International Public Health Policy. Dr. Pollock er menntaður læknir, sem síðan hefur sérhæft sig í rannsóknum á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar. Erindið verður túlkað. Morgunverðarkaffi í boði BSRB.

Dr. Allyson Pollock hefur látið mjög að sér kveða í umræðu um heilbrigðismál og m.a. gefið út bók um breska heilbrigðiskerfið og einkavæðingu þess, NHS (National Health System), The Privatisation of our Health Care. Þessi bók vakti mikla athygli og hlaut mikið lof þegar fyrsta útgáfan kom út árið 2004 en hún var síðan endurútgefin árið 2005. Bókin var afar gagnrýnin á stefnu breska Verkamannaflokksins, New Labour (sem gengið hefur jafnvel harðar fram í einkavæðingu en Íhaldsflokkurinn breski) og sagði í umsögn í British Medical Journal, að bókin væri skrifuð af dirfsku og vegna þess að ríkisstjórnin vildi ekki að þú læsir hana væri kannski ráð að gera einmitt það. („A brave, necessary book. And because you know the government thinks you shouldn´t read it, you probably should.")

Dr. Pollock heldur því fram að við séum að verða vitni að geysilega umfangsmiklum þjóðfélagsbreytingum - miklu meiri en fólk almennt geri sér grein fyrir - sem felast í því að markaðsvæða allt innra stoðkerfi samfélagsins. Þessu geri fólk sér hins vegar ekki almennt grein fyrir enda sé þetta gert smám saman og í alls kyns dulargervi. Sumir sem taka þátt í ákvarðanaferlinu vita ekki hvað þeir eru að gera á meðan aðrir séu með markmiðin skýr. Þegar breska heilbrigðiskerfið var gert að þjóðareign árið 1948 var það gert með einni lagasetningu. Þá vissu allir hvað var að gerast. Svo er ekki nú. Undir aðskiljanlegum heitum, „einkaframkvæmd", „einkarekstur", „samstarf ríkis og einakgeira" er verið að ýta heilbrigðiskerfinu út á markaðstorgið.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English