Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

16.9.2008

Örnámskeið Framvegis inn á vinnustaði

VIKA SÍMENNTUNAR 2008

Örnámskeið Framvegis inn á vinnustaði

 

Vika símenntunar verður 22.-28. september 2008. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í íslensku atvinnulífi og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. 

   Í viku símenntunar 2008 er lögð áhersla á fræðslu í fyrirtækjum og sem fyrr að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun. Miðvikudagurinn 24. september er árlegur símenntunardagur í fyrirtækjum og stofnunum. Fyrirtæki eru hvött til að tileinka þann dag fræðslumálum, t.d. með því kynna starfsmönnum fræðslustefnu fyrirtækisins, bjóða upp á námskeið eða fá kynningar frá fræðsluaðilum, stéttarfélögum eða styrktarsjóðum.

   Fræðsluaðilar, fyrirtæki, stofnanir, samtök og allir þeir sem koma að símenntun eru hvattir til að nýta sér verkefnið til hvatningar og kynningar á því símenntunarstarfi og starfsþjálfun sem fram fer hér á landi.

   Menntamálaráðuneytið stendur fyrir viku símenntunar en framkvæmd verkefnisins er í nánu samstarfi við símenntunarstöðvarnar níu á landsbyggðinni, Framvegis á höfuðborgarsvæðinu og Mími-símenntun.

   Vika símenntunar er stórt og árvisst verkefni þar sem fjölmargir hagsmunaaðilar eru kallaðir til samstarfs um að vekja athygli á mikilvægi símenntunar og hvetja fólk til að leita sér þekkingar.

 

Örnámskeið Framvegis

 

Framvegis, miðstöð um símenntun í Reykjavík, býður upp á örnámskeið inni á vinnustöðum í tilefni Viku símenntunar. Heiti þessara örnámskeiða eru: „Kann ég allt, get ég allt?“, „Ritara- og skrifstofustjóranámið“, „Þjónusta fyrir starfsmenn hins opinbera“ og „Að hefja nám“ sem er námskeið með námsráðgjafa. Þeir sem hafa áhuga á að panta eitthvert þessara námskeiða getur sent beiðni á netfangið framvegis@framvegis.is eða hringt í síma 581-4914.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English