Stafgöngunámskeið sem haldin voru, á vegum St.Rv. og SFR, nú í október tókust afar vel og var það að heyra á þátttakendum að þeir tóku undir orð Halldórs Hreinssonar, stafgöngukennara og göngufararstjóra, að alltaf væri gott veður í Laugardalnum, bara spurning um að drífa sig út að ganga.
Stafgöngunámskeiðin hafa verið afar vinsæl meðal félagsmanna, enda hreyfing sem hentar flestum. Nú hvetjum við alla þá sem hafa lokið stafgöngunámskeiði og aðra áhugasama til að fjölmenna í Laugardalinn.
Stofnaður verður formlegur gönguhópur sem hittist tvisvar í mánuði til að byrja með, 2. og 4. hvern mánudag kl. 17.30 fyrir framan aðalinngang Skautahallarinnar. Sjáumst 10. nóvember næstkomandi.
