Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

10.11.2008

Fræðslusetrið Starfsmennt fékk Starfsmenntaverðlaun

 

undefined


Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Árni Stefán Jónsson formaður SFR, Kristín Völundardóttir sýslumaður á Ísafirði og Hulda Anna Arnljótsdóttir framkvæmdastjóri Starfsmenntar.

Fræðslusetrið Starfsmennt fékk Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs í flokki skóla og fræðsluaðila vegna verkefnisins Járnsíða sem unnið var í samvinnu við Sýslumannsembættið. Afhending verðlaunanna fór fram í dag í BSRB húsinu. Samskip fékk verðlaunin í flokki fyrirtækja fyrir metnaðarfullt fræðslustarf. Engin verðlaun voru að þessu sinni veitt í opnum flokki félagasamtaka og einstaklinga.

 undefined

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands afhenti verðlaunin og fyrir hönd Starfsmenntar tóku við þeim Hulda Anna Arnljótsdóttir framkvæmdastjóri Starfsmenntar, Árni Stefán Jónsson formaður SFR og Kristín Völundardóttir sýslumaður á Ísafirði.

 




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English