Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

13.11.2008

Farsæld í stað hagsældar

Líðan þín í vinnunni á óvissutímum

Í dag bauð SFR og St.Rv. upp á fyrirlestur í hádeginu fyrir félagsmenn um líðan í vinnunni á óvissutímum. Fyrirlesari var Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, frá Rannsóknastofu í vinnuvernd. Hún fjallaði um líðan í vinnu, áhættuþætti og hvernig bæta megi líðan starfsmanna. Einnig kom hún inn á þá óvissu sem við búum við núna og reiðina en mikilvægt er að finna reiðinni farveg. Ein leiðin getur verið að taka þátt í félagsstarfi og finna þannig uppbyggilegan farveg, önnur að ræða um það sem er að gerast og önnur. Hún sagði að einnig væri mikilvægt að ræða líka um aðra hluti, leyfa ekki kreppunni að einoka alla umræðu á vinnustöðum. Í lokin velti Ingibjörg upp þeirri spurningu hvort núna væri kominn sá tímapunktur að Íslendingar færu að hugsa um farsæld í stað hagsældar. Góðar umræður sköpuðust á fundinum.

undefined

 




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English