Atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning við Faxaflóahafnir sf. er lokið. Á kjörskrá voru 31 en atkvæði greiddu 21 eða 67,7%.
Já sögðu 20 eða 95,2%, nei sögðu 0 og einn seðill var auður.
Samningurinn hafði áður verið samþykktur á fundir stjórnar Faxaflóahafna þann 14. nóvember 2008 og telst hann því samþykktur af beggja hálfu. Gildistími samningsins er frá 1. nóvember 2008 til 31. mars 2011 með uppsagnarákvæði af beggja hálfu.