Fjallað er um stöðuna á vinnumarkaði, skattleysismörk og persónuafslátt í Dreifibréfi BSRB sem var að koma út. Atvinnuleysi hefur aukist verulega og má gera ráð fyrir að það aukist enn frekar á næstu mánuðum.
Grunnatvinnuleysisbætur nema nú rúmum 136 þúsundum króna en auk þess eru atvinnuleysisbætur nú tekjutengdar og nema 70% af meðaltali heildarlauna yfir sex mánaða tímabil sem hefst átta mánuðum áður en einstaklingur verður atvinnulaus. Hámark bótanna er rúmar 220 þúsund krónur.