Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

21.11.2008

Stjórn BSRB mótmælir aðför að velferðarþjónustunni

BSRB mótmælir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um flatan 10% niðurskurð á velferðarkerfinu og telur það fráleitt á þeim samdráttartímum sem framundan eru. Ályktun stjórnar fer hér á eftir:

Stjórn BSRB mótmælir harðlega ákvörðun ríkisstjórnarinnar um flatan 10% niðurskurð í velferðarkerfi landsmanna. Þetta hefði í för með sér fjöldauppsagnir og verulega skerðingu á þjónustu og gengur þvert á það sem nú er brýnast að gera: stórefla velferðarþjónustuna og styrkja öryggisnet fjölskyldnanna. Á tímum samdráttar er fráleitt að grípa til ráðstafana sem auka á atvinnuleysi í landinu. BSRB hefur á undanförnum misserum margoft bent á hve þröngur stakkur mörgum samfélagsstofnunum er sniðinn og að það hamli því að þær geti sinnt þjónustuhlutverki sínu. Niðurskurður á framlögum til þessara stofnana nú er glapræði og hvetur BSRB alla landsmenn til að mótmæla þessum einhliða ráðstöfunum.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English