Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

21.11.2008

Líflegur fundur um kosti og galla verðtryggingar

Opinn fundur BSRB um kosti og galla verðtryggingar var vel sóttur og sköpuðu erindi Ingólfs H. Ingólfssonar félagsfræðings og Péturs H. Blöndal alþingismanns líflegar umræður.

 

Ingólfur lagði til að á meðan verðbólgukúfurinn gengi yfir yrðu verðbætur frystar við 4% og þegar jafnvægi væri náð og verðbólga komin niður í 2,5% yrði lánum sem áður voru með verðbótum breytt í lán með breytilegum vöxtum. Pétur benti hins vegar á að afnám verðtryggingarinnar myndi bitna t.d. á lífeyrissjóðunum og þar af leiðandi á lífeyrisgreiðslum til sjóðfélaga.

 

Fundarstjóri var Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB og eftir erindin voru fjölmargar fyrirspurnir úr sal.

Fundurinn var tekinn upp og er hægt að sjá hann hér




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English