Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

25.11.2008

Opinn fundur BSRB -Hvað gerir bankinn fyrir þig?

Hvað gerir bankinn fyrir þig? er yfirskrift opins fundar á vegum BSRB á morgun, miðvikudag, kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum munu fulltrúar viðskiptabankanna kynna úrræði sem þeir bjóða viðskiptavinum sínum upp á til að mæta áföllum heimilanna vegna efnahagsástandsins.

Framsögu hafa Helgi Bragason frá Kaupþingi, Una Steinsdóttir frá Glitni, Anna Bjarney Sigurðardóttir frá Landsbanka og Atli Örn Jónsson frá Byr. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB.

Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English