Fimmtudaginn 4. desember nk. verður hádegisverðarfróðleikur á vegum St.Rv. og SFR þar sem Gunnar Hersveinn heldur erindi sem hann kallar "Gildi samfélagsins og orðspor" og byggir hann á ný útgefinni bók sinni Orðspor - gildin í samfélaginu. Í bókinni fjallar hann um hvernig einstaklingar geta lagt öðrum lið og tekið þátt í því að bæta samfélag sitt. Tekur hann þar upp þráðinn frá metsölubókinni Gæfuspor - gildin í lífinu sem fjallar um viðleitni eintaklinga til að bæta sjálfa sig með því að efla tilteknar dyggðir og rækta tilfinningar; hér er horft út á við - á hvernig við getum bætt samfélagið.
Sjá nánari umfjöllun um bókina HÉR.