Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.12.2008

Blóðsúthellingunum á Gaza mótmælt

Útifundur til að mótmæla blóðsúthellingunum á Gaza verður haldinn á Lækjartorgi í dag, þriðjudag 30. desember kl. 16. Kröfur dagsins eru: Stöðvið fjöldamorð  Ísraelshers á Gaza. Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael. Meðal ræðumanna er Ögmundur Jónasson formaður BSRB og fundarstjóri er Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.

Aðrir ræðumenn eru María S. Gunnarsdóttir, formaður Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna og Sr. Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur.

Fundurinn er undibúinn af Félaginu Ísland-Palestína með stuðningi fjölmargra félagasamtaka.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English