Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

29.1.2009

Breytingar á yfirvinnu hjá Reykjavíkurborg

29. janúar 2009

 

Til þeirra er málið varðar.

Reykjavíkurborg er þessa dagana að segja upp fastlaunasamningum og jafnframt að bjóða upp á nýja fastlaunasamninga sem munu innihalda færri yfirvinnutíma, samkvæmt tilkynningum frá forstöðumönnum og bréfi frá Halli Páli Jónssyni mannauðstjóra borgarinnar dagsett 25. janúar 2009.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar vill árétta nokkur atriði, sem málið varðar.

Starfsmannafélag Reykjvíkurborgar er þeirrar skoðunar að uppsögn á hluta af ráðningakjörum, ef til kemur, eigi að vera með sama hætti og ef um uppsögn  væri að ræða og að jafnframt þurfi að rökstyðja það.

 

Í kjarasamningi segir: Sé starfsmanni sagt upp eftir a.m.k. 10 ára samfellt starf er uppsagnarfrestur 4 mánuðir ef starfsmaður er orðinn 55 ára, 5 mánuðir ef hann er orðinn 60 ára og 6 mánuðir þegar hann er orðinn 63 ára að öðrum kosti er það 3 mánuðir.

Þetta ber að virða. 

 

Eftirfarandi kemur fram í bréfi frá mannauðsskrifstofu Reykjavíkurborgar:

  • “Þeir sem þiggja hæstu laun munu taka á sig meiri skerðingu fastra heildarlauna en þeir sem lægri laun   hafa.  
  • Meginreglan við endurskoðun fastlaunasamninga er að lækka ekki föst heildarlaun sem eru undir 300 þúsund krónum á mánuði.
  • Aðgerðir verði samræmdar fyrir borgarkerfið og jafnræðis gætt á milli starfsmanna og fagsviða eins og kostur er, samhliða því að framkvæmdin verði gegnsæ og ákvarðanir málefnalegar.

·         Aðgerðir þessar eru tímabundnar.”

 

Síðan segir í bréfinu:


,,Gert er ráð fyrir að stjórnendur leiti samkomulags við starfmenn um að nýir samningar taki gildi sem fyrst og eigi síðar en 1. maí 2009. Stefnt verði þó að því að fækkun fastra yfirvinnutíma taki gildi frá 1. febrúar og að lækkun verði þannig dreift á 11 mánuði en að öðrum kosti, verði hún hlutfallslega meiri, taki hún gildi frá 1. maí. Nýir fastlaunasamningar gildi til ársloka og verði þá endurskoðaðir. Þess skal þó gætt að heildarlækkun fastra launa m.v. 11 mánuði (mán.laun + föst yv.) verði ekki umfram 10%.”

 

Þarna er verið freista þess að fá starfsmenn til þess að gefa eftir rétt sinn er varðar uppsagnarákvæði kjarasamnings, þegar starfsmenn taka ákvörðun um hvort eigi að gefa eftir rétt sinn um uppsagnarfrest og flýta framkvæmdinni. Starfsmaður þarf að hafa eftirfarandi í huga áður en hann tekur ákvörðun:

 

·         Að króna í dag er verðmætari en króna á morgun vegna verðbólgu.

·         Að það er óvissa um stöðuna eftir þrjá mánuði eða eitt ár.

·         Jafnframt þarf að hafa í huga að ef um frekari niðurskurð verður að ræða og menn tapa vinnu sinni þá breytast forsendur og þá er öruggara að hafa fengið sem mest greitt, sem fyrst.

·         Við það að fara strax á lægri samning og nýta ekki uppsagnarákvæði hefur það áhrif á greiðslur  vegna veikinda  til lækkunar eftir fyrsta mánuð nýs fastlaunasamnings á þessu ári.  

·         Einnig verður hver og einn að spyrja sig hvort þeir treysti þeim sem hafa um þetta að segja.

 

 

Það er ljóst samkvæmt bréfinu sem vitnað er til hér að framan að þessar aðgerðir er varðar uppsögn á yfirvinnu á ekki við þá sem eru með heildarlaun 300.000 kr. á mánuði og lægri og þeir sem eru yfir 300.000 lækki ekki niður fyrir þá tölu.

 

Að öðru leyti þá breyta þessi skrif ekki þeirri skoðun félagins sem fram kemur í eftirfarandi ályktun stjórnar.

 

Stjórnarfundur Starfsmannafélags Reykjavíkuborgar haldinn 21. janúar 2009 gagnrýnir harðlega áform Reykjavíkurborgar um að segja upp yfirvinnu sem bundin er í fastlauna- og ráðningarsamningum, á sama tíma og ljóst er að álag eykst á starfsmenn vegna aðstæðna í samfélaginu, kaupmáttur rýrnar dag frá degi og ekki er séð fyrir endann á þeirri þróun.
 
Stjórn St.Rv. skorar á borgaryfirvöld að nú þegar verði leitað allra leiða, í samstarfi við starfsmenn, til þess að spara með öðrum hætti en að lækka laun eða fækka störfum. Á mörgum starfsstöðum hafa komið ótal hugmyndir að sparnaði og nú er bæði þörf og nauðsyn að virkja starfsmenn á þessu sviði.

 

Garðar Hilmarsson

formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English