Á óvenju fjölmennum aðalfundi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldinn var í gær, fimmtudaginn 19. mars kl. 17 fór Garðar Hilmarsson formaður St.Rv. yfir ákveðna þætti í ársskýrslu, sem hafði verið send öllum félagsmönnum í Fréttabréfi. Fjármálastjóri félagsins, Ása Clausen skýrði reikninga fyrir hönd gjaldkera Víglundar Rúnars Jónssonar. Tekin var ákvörðun um óbreytt árgjöld félagsmanna. Kjörstjóri kynnti kosningarúrslit til stjórnar. Á fundinn komu Sigríður Thorlacíus og Hjörtur Ingi Jóhannsson og fluttu þrjú lög við fögnuð fundargesta.
Fundurinn ályktaði eftirfarandi
Ályktun I
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, haldinn 19. mars 2009, ályktar: Í yfirlýsingu, sem Evrópusamtök verkalýðsfélaga (ETUC) sendu frá sér í lok febrúar, segir að óviðundandi sé að launafólk beri byrðar af efnahagshruni, sem það beri enga ábyrgð á heldur sé framkallað af blygðunarlausri græðgi fjármálafyrirtækja og fjárglæframanna. Fundurinn tekur undir þetta og krefst þess að stjórnvöld hraði sem mest aðgerðum til varnar kjörum almennings og beiti öllum tiltækum ráðum til þess. Meðal nauðsynlegra úrræða má nefna:
Fundurinn hvetur verkalýðshreyfinguna til að veita stjórnvöldum stuðning og ekki síður aðhald til þessara verka. Jafnframt er hvatt til þess að ekkert verði gefið eftir í kjaramálum né gengið að frestun kjarasamninga nema tryggt sé að það sé aðeins til bjargar atvinnulífinu en ekki hagnaðar fyrir atvinnurekendur og fjármagnseigendur. Bókhald fyrirtækja verður að vera opið og launaleynd og hverskyns tekju- og eignaleynd afnumin með öllu.
Ályktun II
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, haldinn 19. mars 2009, hvetur alla vinnuveitendur félagsmanna til þess að virða kjarasamninga og forðast að skerða kjör starfsmanna sinna, enda er almennt ekki um hálaunastörf að ræða. Jafnframt hvetur fundurinn jafnt yfirmenn sem almennt starfsfólk til að standa þétt saman og sýna hvert öðru stuðning á þessum tímum, þegar margir þurfa að takast á við fjárhagslega erfiðleika og jafnvel atvinnumissi fjölskyldumeðlima.





