Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

4.5.2009

Fjölmenni á baráttufundinum á Austurvelli

Fjölmenni var í kröfugöngu sem fór frá Hlemmi niður á Austurvöll og svo í framhaldinu á útifundinum. Ræðumenn á fundinum voru Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ,  þórveig Þormóðsdóttir formaður Félags starfsmanna stjórnarráðsins og Stefán Rafn Sigurbjörnsson formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema. 200.000 Naglbítar, Lúðrasveit verkalýðsins og Sigtryggur Baldursson og Parabólurnar fluttu tónlist.undefined

 

 

 

 

 

 


„ Á undanförnum árum höfum við orðið vitni að óheftri græðgi ákveðinna aðila í samfélaginu sem að lokum leiddi til hruns efnahagslífsins. Á þeim tíma jókst óréttlætið í þjóðfélaginu, launabilið varð að gjá og launamisrétti kynjanna hefur ekki verið meira í langan tíma. Nú þegar taka þarf til hendinni og hreinsa upp er mikilvægt að þeir sem sátu eftir á „góðæristímanum" svokallaða verði ekki látnir moka flórinn eftir fjárglæframennina," sagði Þórveig Þormóðsdóttir formaður Félags starfsmanna stjórnarráðsins m.a. í ræðu sinni á Austurvelli í dag.

Sjá ræðu Þórveigar Þormóðsdóttur

undefined

Að loknum baráttufundinum á Austurvelli var 1. maí kaffi í BSRB - húsinu og að venju var fullt út úr dyrum.

 

 

 

 

 

 




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English