Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

12.5.2009

Styrkir í nám til atvinnulausra kvenna

Menningar-og minningarsjóður kvenna

 auglýsir eftir styrkumsóknum

 

Auglýst er eftir umsóknum vegna ársins 2009. Að þessu sinni er sjóðurinn opinn fyrir umsóknir frá atvinnulausum  konum 30 ára og eldri sem hófu nám eða hyggja á  nám á árinu 2009.

Um getur verið að ræða háskólanám, nám í framhaldsskóla til stúdentsprófs eða nám á styttri starfsbrautum og verknámsbrautum. Styrkupphæð árið 2009 er ein milljón króna og áskilur stjórn sjóðsins sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega. Styrkur verður greiddur út þegar staðfesting á skólavist liggur fyrir.

Með umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:

·       Skattaskýrsla fyrir árið 2008

·       Staðfesting frá Vinnumálastofnun um atvinnuleysi

·       Staðfesting á skólavist (ef hún liggur fyrir)

 

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Kvenréttindafélags Íslands: www.krfi.is. Í umsókn skulu koma fram  helstu upplýsingar um umsækjanda og aðstæður hans, hvaða skóla sótt er um og hvaða nám umsækjandi hyggst stunda. 

 

Umsóknarfrestur er til 5. júní nk. Tilkynnt verður um styrkþega á kvenréttindadaginn 19. júní. Allar nánari  upplýsingar á skrifstofu KRFÍ og á netfanginu: krfi@krfi.is.

 

Menningar og minningasjóður kvenna




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English