Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2008. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2008 dags. 30. maí 2008.
Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.
Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html.
Reykjavík, 26. september 2008
Ferðakostnaðarnefnd