Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

9.11.2009

Hagsmunafélag faglærðra matreiðslumanna

Á fjölmennum fundi 5. nóv. s.l. var formlega stofnað hagsmunafélag faglærðra matreiðslumanna í grunnskólum Reykjavíkur.

Tilgangur félagsins er að efla samheldni félagsmanna auka færni og þekkingu og stuðla að bættum hag þeirra. Félagar geta þeir talist sem stýra mötuneytum í grunnskólum Reykjavíkur.

Yfir 20 manns sóttu fundinn, þeir sem vilja fá frekari upplýsingar um félagið er bent á að hafa samband við Unnstein í Árbæjarskóla, Gunnar í Rimaskóla eða Þorbjörgu í Vesturbæjarskóla.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English