Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

26.11.2009

Skerðingu greiðslna í fæðingarorlofi mótmælt

Ályktun stjórnar BSRB um skerðingu greiðslna í fæðingarorlofi

BSRB krefst þess að sparnaðarkrafa sem hefur verið lögð á fæðingarorlofssjóð verði endurskoðuð. Íslenska fæðingarorlofskerfið hefur vakið mikla athygli hjá öðrum þjóðum og hefur verið horft til þess sem fyrirmynd.  Ef sparnaðarkröfunni verður haldið til streitu er verið að hverfa áratugi aftur í tímann og vega að þeirri jafnréttishugsun sem í kerfinu felst.

Markmið fæðingarorlofslaganna er að tryggja að barn og foreldrar geti notið samvista. Einnig er lögunum ætlað að tryggja samræmingu fjölskyldu-- og atvinnulífs foreldra.

Skerðing á greiðslum í fæðingarorlofi dregur úr líkum þess að framangreind markmið laganna náist og er jafnframt varhugaverð afturför í jafnréttismálum.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English