Trúnaðarmannafræðslan sem BSRB og Félagsmálaskóli alþýðu bjóða upp á er metin til 10 eininga á framhaldsskólastigi.
Námskeiðið er í sex þrepum. Í fyrsta hlutanum er lögð höfuðáhersla á vinnumarkaðinn og verkalýðshreyfinguna, störf og stöðu trúnaðarmannsins og samskipti á vinnustað. Í öðru þrepi er starfsemi stéttarfélaga tekin fyrir, vinnuréttur, launaseðlar, launaútreikningar og Starfsendurhæfingarsjóður. Í þriðja þrepi er áhersla lögð á hagfræði, samskipti á vinnustað og tjáningu. Í fjórða þrepi er fjallað um stjórnunarstíla og leiðtoga, einelti, skipulögð vinnubrögð og samningatækni. Í fimmta þrepi er á dagskrá samtalstækni og íhlutun, vinnuvernd, hnattvæðing og fyrirtækjasamningar. Í sjötta þrepi er svo kynning á náms- og starfsráðgjöf og færnimappa talsmannsins.
Skráning er í gegnum skráningarkerfi á vef BSRB. Þátttakendur skrái sig í samráði við sitt aðildarfélag. Þátttakendur þurfa sjálfir að búa til aðgangsorð þegar þeir skrá sig og fá svo staðfestingu senda í tölvupósti. Upplýsingar veitir skrifstofa BSRB í síma 525 8300.