Ályktun um atvinnumál
Vaxandi atvinnuleysi er mikið áhyggjuefni og hverjum þeim böl sem í því lendir, auk þess að vera dýrt fyrir samfélagið.
Við þessar aðstæður ríður á að stjórnvöld búi svo í haginn að öllum sé tryggð atvinna, að enginn sé settur til hliðar. Uppsögn starfsmanna í opinberri þjónustu er því óviðunandi, enda dregur ekki úr þörf hennar heldur verður hún enn mikilvægari þegar harðnar á dalnum. Auk þess er það hæpinn sparnaður að setja menn á atvinnuleysisbætur meðan vinnuálag eykst á aðra. Jafnframt er brýnt að búa í haginn fyrir nýsköpun og fjölbreytta atvinnustarfsemi á almennum vinnumarkaði.
Ályktun um kjaramál
Undanfarið ár hefur verið mikill niðurskurður á launakjörum starfsmanna ríkis og bæja. Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar tekur undir að allir verði að bera byrðar þær sem lagst hafa á þjóðina með ósanngjörnum hætti. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar krefst þess að viðsemjendur umgangist gerða launasamninga af virðingu og að unnið verði í nánu samráði við starfsmenn og stéttarfélög að finna aðrar leiðir en launaskerðingu og uppsagnir til að hagræða í rekstri.
Margar stofnanir eru undirmannaðar vegna niðurskurðar um leið hafa verkefni aukist og víða gengið á kjör starfsmanna. Við þetta verður ekki unað.
Síðastliðið ár hefur verið þungbært fyrir launafólk. Laun hafa lækkað, atvinnuöryggi hefur minnkað og skuldabyrði aukist. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar krefst þess að ríkisstjórnin komi með raunhæfar aðgerðir fyrir heimilin í landinu. Það er með öllu óviðunandi að sífellt sé gengið á hag heimila og fjölskyldna með kjaraskerðingu, miklum verðlagshækkunum og þyngingu á greiðslubyrði fasteignalána. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar krefst þess að ríkisstjórn Íslands vinni fyrir alla sína þegna og gæti þess að hagur fjármagnseigenda sé ekki settur ofar hag heimilanna í landinu. Seinagangur í þessum málum er með öllu ólíðandi þar sem stefnir í greiðsluþrot hjá fjölda manns.
Ályktun um samfélagsmál
Allur almenningur kallar á nýtt Ísland – sem okkur var lofað fyrir síðustu kosningar. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar kallar eftir betra siðferði, nýjum áherslum og gegnsæjum og lýðræðislegum stjórnarháttum.
Til að byggja upp nýtt og betra samfélag þurfa allir að snúa bökum saman og standa jafnt að þeirri uppbyggingu. Það gengur ekki að allur almenningur sitji óbættur hjá garði og borgi brúsann uns hann getur ekki meir. Í stað ónógra og marklausra úrlausna áminnir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar stjórnvöld um að hafa allra hag að leiðarljósi og spyr:
Ályktun um jafnréttismál
Í dag er öld liðin síðan hugmyndin um alþjóðlegan baráttudag kvenna kom fram. Mikið hefur áunnist á þeim tíma í réttinda- og kjarabaráttu kvenna. Stundum mætti ætla að það eina sem á vantar sé að konur standi jafnfætis körlum í stjórnun fyrirtækja, að jafnrétti og jöfn staða kynjanna sé alls staðar komið á nema í efstu lögum samfélagsins. En því fer fjarri. Enn eru konur að jafnaði á lægri launum en karlar og er óútskýrður kynbundinn launamunur meðal félaga Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar því miður staðreynd. Ofbeldi gagnvart konum er enn útbreitt vandamál og ýmis konar kvenfyrirlitning viðgengst í fjölmiðlum, auglýsingum og úti í samfélaginu þar sem líkami kvenna er gerður að söluvöru sem aldrei fyrr. Og sé horft yfir heimsbyggðina má sjá að víða er staða kvenna bágborin, bæði í efnahagslegu tilliti og hvað jafnrétti varðar, auk þess sem þær verða illa úti í stríðsátökum, valdabaráttu og gróðabraski.
Krafan er fullt jafnrétti og jöfnuður milli kynja og að allir njóti sömu virðingar og mannréttinda. Um leið og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar sendir konum um allan heim baráttukveðjur, varar félagið við skerðingum á framlögum til velferðamála kvenna.
Ályktun um verðtryggingu
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar beinir því til stjórnar félagsins og stjórnar BSRB að þær beiti sér fyrir því að skoðað sé í fullri alvöru að afnema verðtryggingu.