Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

17.3.2010

Nýjar aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna

Ríkisstjórnin kynnti í dag nýjar aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Meðal þess helsta sem nú er lagt til af hálfu ríkisstjórnarinnar skv. frétt á heimasíðu forsætisráðuneytisins er annars vegar stórbætt greiðsluaðlögunarfrumvarp, sem eftirleiðis verður félagslegt úrræði en ekki „vægara" form gjaldþrots. Fleiri munu hafa rétt á greiðsluaðlögun og verður nú eitt kerfi fyrir allar kröfur. Með þessu er samningsstaða lántakenda gagnvart sínum lánadrottnum bætt.

Samhliða nýju greiðsluaðlögunarfrumvarpi verður sett á fót embætti umboðsmanns skuldara sem byggt verður á traustum grunni Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Umboðsmaðurinn verður talsmaður lántakenda gagnvart lánardrottnum og er ekki hlutlaus.

Ríkisstjórnin kynnir nú fjölmargar nýjungar sem bætir stöðu lántakenda enn frekar. Meðal þess helsta eru:

  • sérstök úrræði fyrir þá sem eru tekjulágir eða hafa orðið fyrir tímabundnu tekjufalli
  • úrræði fyrir fólk með tvær eignir
  • enn lægra hámark á dráttarvexti
  • við nauðungarsölur verður markaðsvirði eigna dregið frá kröfu
  • fólki gert kleift að búa í húsnæði í 12 mánuði þrátt fyrir nauðungarsölu/gjaldþrot
  • hámarksfjárhæðir innheimtukostnaðar takmarkaðar enn frekar
  • reglur um niðurfellingu skattkrafna endurskoðaðar
  • hóflegar skuldbreytingar skattfrjálsar
  • stórfelldar niðurfellingar skattlagðar
  • dregið úr vægi verðtryggingar

Við þær sviptingar sem orðið hafa á lána- og húsnæðismarkaði er ljóst að horfa verður til framtíðar. Því mun verða lögð fram heildstæð húsnæðisstefna til framtíðar á vormánuðum, sem byggir á þremur stoðum: eigna-, búseturéttar- og leiguleið.

  • Nýju kaupleigukerfi verður komið á fót hjá Íbúðalánasjóði vegna eigna sem hann á nú þegar - örugg leiga og kaupréttur.
  • Bætt lög um húsnæðissamvinnufélög.
  • Húsnæðisbætur í stað vaxta- og húsaleigubóta.



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English