Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

23.3.2010

Álit BSRB á umræðu um kjör opinberra starfsmanna

"Þrátt fyrir þrotlausa baráttu stéttarfélaga hafa laun opinberra starfsmanna ávallt verið lakari en kjör sambærilegra stétta á almennum vinnumarkaði. Það er fráleitt að tala um að einhver grundvallarbreyting hafi orðið á þessum launamun nú þegar einkageirinn gengur í gegnum tímabundna leiðréttingu á rekstrarumhverfi sínu," segir m.a. í yfirlýsingu frá BSRB um villandi fjölmiðlaumfjöllun um kjör opinberra starfsmanna.

Yfirlýsing BSRB fer hér á eftir:

Vegna villandi umfjöllunar um kjör opinberra starfsmanna í fjölmiðlum undanfarið vill BSRB taka eftirfarandi fram:

  • Einfaldar skýringar eru á því afhverju launavísitala hjá hinu opinbera mælist sterkari milli ára í nýútgefnum tölum Hagstofunnar. Laun hjá ríki og sveitarfélögum fylgja kjarasamningum sem gerðir eru til lengri tíma og hækkunaráhrif launa eru lengur að koma fram þar heldur en á almennum vinnumarkaði. Miklar sveiflur eru hins vegar jafnan á launaþróun á almennum vinnumarkaði.

  • Ef tölur Hagstofunnar eru skoðaðar nánar sést að þarna er miðað við meðaltal hvors árs. Ef miðað væri við breytingar milli 4. ársfjórðungs 2008 annars vegar og 4. ársfjórðungs 2009 hins vegar hækkuðu laun opinberra starfsmanna aðeins um 3,0% en almenni markaðurinn um 3,4%. Þannig að þrátt fyrir mikinn samdrátt í atvinnulífinu eru laun þar þó að hækka meira en laun opinberra starfsmanna sem eru að fá löngu umsamdar prósentuhækkanir fyrst nú.

  • Þrátt fyrir þrotlausa baráttu stéttarfélaga hafa laun opinberra starfsmanna ávallt verið lakari en kjör sambærilegra stétta á almennum vinnumarkaði. Það er fráleitt að tala um að einhver grundvallarbreyting hafi orðið á þessum launamun nú þegar einkageirinn gengur í gegnum tímabundna leiðréttingu á rekstrarumhverfi sínu.

  • Þess má að lokum geta að kaupmáttur launa hefur síðustu 12 mánuði minnkað um 3,4%. Þar af lækkaði hann um 0,7% bara í febrúarmánuði. Ljóst er af þessu að launafólk hefur mun minna á milli handanna og þær prósentuhækkanir sem búið var að semja um duga hvergi nærri til að bæta upp þessa miklu tekjuskerðingu. Skerðing á yfirvinnu og starfstengdum greiðslum hjá ríki og sveitarfélögum hafa auk þess komið verulega við buddu opinberra starfsmanna.

  • Fyrir félagsmenn BSRB er það því ansi framandi mynd af veruleikanum þegar að menn stíga fram og tala um að opinberir starfsmenn búi við betri kjör en aðrir hópar. Ekki þarf að skoða kjarasamninga, starfsumhverfi eða þróun verðbólgu sérlega grannt til að sjá að þetta stenst engan veginn.
 



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English