Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

19.4.2010

Starfsendurhæfing

Starfsendurhæfingarsjóður stendur fyrir morgunverðarfundi fimmtudaginn 29. apríl 2010 frá kl. 8:15 – 10:00 á Grand hótel Reykjavík.  Á fundinum mun Vigdís Jónsdóttir gera grein fyrir starfsemi sjóðsins undanfarið ár og Jain Holmes sérfræðingur og ráðgjafi í starfsendurhæfingu í Bretlandi flytur fróðlegt erindi um starfsendurhæfingu í atvinnulífinu.  Erindi hennar nefnist “Cooperation with the Labor Market for Effective Vocational Rehabilitation”. 

Jain Holmes er virtur ráðgjafi og fræðimaður á sviði starfsendurhæfingar og hefur m.a. gefið út fræðslurit og kennslubækur á þessu sviði. 

Fundurinn er öllum opinn og er hann í boði Starfsendurhæfingarsjóðs. 

Hægt er að skrá sig inn á heimasíðu  www.virk.is eða senda póst á virk@virk.is

Sjá dagskrá




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English