Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.4.2010

Stöndum vörð um samningsbundin réttindi

Reykjavík 30. apríl 2010

 

Stöndum vörð um samningsbundin réttindi

 

Sameiginleg yfirlýsing BSRB, BHM og KÍ

 

Á grundvelli stöðugleikasáttmálans hefur verið starfandi nefnd sem falið var að fjalla um þau vandamál sem nú steðja að íslenska lífeyrissjóðakerfinu og mögulegar lausnir í því sambandi. Fulltrúar samtaka opinberra starfsmanna hafa tekið þátt í þeirri vinnu ásamt öðrum fulltrúum launafólks, atvinnurekenda og stjórnvalda í þeirri trú að þessi vinna geti leytt til farsællrar lausnar fyrir kerfið í heild sinni.

Nú er svo komið að opinberir starfsmenn og lífeyrissjóðakerfi þeirra liggur undir stöðugum árásum m.a. frá hendi forseta ASÍ og Viðskiptaráði Íslands. Með þessu framferði grafa þessir aðilar undan því starfi sem unnið er á borði nefndarinnar.

Lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna eru hluti af starfskjörum þeirra og það er ólíðandi að samtök launafólks eins og ASÍ skuli ráðast á kjarasamningsbundin kjör annarra launamanna.

Samtök opinberra starfsmanna mótmæla þessari aðför og vilja undirstrika að lögbundin og samningsbundin réttindi launafólks verða ekki af því tekin, enda er um réttindin samið á milli samningsaðila og sá samningur síðan festur í lög.

Samtök opinberra starfsmanna telja að forsenda fyrir að lausn náist um lífeyrismálin er að staðið verði að fullu við lífeyrisskuldbindingar enda eru þær hluti af launakjörum opinberra starfsmanna.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English