Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

3.5.2010

Formaður BSRB á 1. maí

Ágætu félagar - góðir landsmenn Í æsku lásum við ævintýri H.C. Andersen um nýju fötin keisarans , þar þurfti barn til að benda á blekkinguna - en í dag erum við öll í hlutverki barnsins.

Hvað gerðist eiginlega - hvert viljum við nú stefna? Þessa fallegu vordaga er sú spurning á hvers manns vörum.

---

Hávær krafa ómar nú um samfélagið og við skulum láta hana enduróma héðan af Austurvelli Krafan um ábyrgð - um uppgjör – og um siðbót. Krafan um róttækar umbætur í íslensku samfélagi.Atvinnulífið, stjórnmálin, lífeyrissjóðirnir og verkalýðshreyfingin. Þar er enginn undanskilinn - og nú er lag. Nú er tími umbóta. En jafnframt tími samstöðu. Réttlátt samfélag jöfnuðar er, þegar allt kemur til alls, eina tryggingin fyrir velsæld þjóðarinnar. Við látum ekki lengur bjóða okkur samfélag þar sem hinir ríku eru upphafnir og aðrir eru gleymdir. Hér var upphafinn stétt auðmanna, sem í þokkabót var undanskilin sköttum og skyldum. Sem lifði á fölsku fjármagni og greiddi ekkert til samneyslunnar Við hin borguðum... og þeir nutu.

--- Dæmin um spillingu og sérgæsku dynja daglega á okkur í fjölmiðlum. Ætlum við að sætta okkur við að þeir sem sátu við kjötkatlanna, haldi áfram að skammta sér tugföld laun á við almennt launafólk. BSRB krefst þess að því linni Það verður engin sátt í íslensku samfélagi fyrr en uppgjörinu er lokið.

---- Ef marka má fjölmiðla þá sitja þessir einstaklingar enn á miklum eignum. Rætt er um að upptaka þessara eigna komi sterklega til greina, í hugum okkar BSRB félaga er það ekkert vafamál. Nauðsynlegt er gera ráðstafanir til þess að búa slíkri eignaupptöku, sem hluta af sáttargjörð í samfélaginu, viðeigandi lagagrundvöll. Fyrirheit stjórnvalda um að krefjast bóta frá þeim sem valdið hafa skaða verða að ganga eftir- það er krafa samfélagsins.

--- Kæru félagar og landsmenn allir

Því miður er það sorgleg staðreynd að það eru margar vinnufúsar hendur, sumar vafalaust hér á meðal okkar hér í dag, sem eru verklausar. Verklausar vegna kreppu, kreppu sem er tilkomin vegna gjaldþrota hugmyndafræði. Kreppu sem skall mun harðar á þjóðinni en efni stóðu til. En ég vil segja við ykkur og leggja á það áherslu. Við erum ekki hjálparlaus.

Við getum tekist á við vandann. Horfum til sjálfboðaliðanna sem aðstoða nú bændur á Suðurlandi eftir öskufallið úr Eyjafjallajökli. Horfum á björgunarsveitirnar, lögregluna, vísindamenn og heilbrigðisstarfsfólk sem vinnur saman eins og einn maður. Þarna sjáum við í verki hið raunverulega gildismat íslensku þjóðarinnar. Eftir allt – eftir allt góðærisruglið, þá var það þarna að finna. Innst innra með okkur.  

Þegar allt kemur til alls þá er það þetta sem raunverulega skiptir máli. Það að standa saman. Alls staðar í samfélaginu er fólk að bregðast við erfiðum tímum, með því að rétta náunganum hjálparhönd. Nágrannar hjálpa nágrönnum og fjölskyldur færast nær hvor annarri. Góðverkin skipta hundruðum og þúsundum á hverjum degi. Hugsið ykkur. Gengisvísitala góðverka hefur snarhækkað. Langt umfram gjaldmiðilinn. Þessu megum við ekki gleyma. Þó bölsýnin byrgi okkur stundum sýn.

...

En þetta er ekki nóg.

Þessi sami samstöðuandi þarf að finna sér leið inn í stjórnmálin - því bankahrunið er ígildi náttúruhamfara. Af hverju sýna þingmenn og stjórnvöld ekki sama skilning og almenningur sýnir fólkinu á hamfarasvæðinu ? Þjappa sér saman og sameinast um það sem máli skiptir. Þannig erum við vön að bregðast við þegar að stór áföll dynja yfir.

...

BSRB krefst þess að stjórnmálamenn hlýði á kall launafólks í landinu Ríkisvaldið verður að fjárfesta í framtíð þjóðarinnar. Það verður að brúa bilið þar til betur árar. Við verðum að verja velferðarkerfið. Það er krafa BSRB að því verði aldrei fórnað. 3

Uppsagnir í almannaþjónustunni geta orðið okkur afar dýrkeyptar. Við þurfum fólk, við þurfum þrautþjálfað fólk, til að sinna þessari þjónustu.

…………. Það er krafa okkar í BSRB að það verði hugað að fjölskyldunum, sem nú eiga í verulegum vandræðum við að ná endum saman. Hafa ekkert svigrúm, hugsum til þeirra í dag, það er þeirra raunveruleiki. Fátækt er að skjóta rótum á Íslandi

Öflug opinber almannaþjónusta er aldrei eins mikilvæg eins og í því ástandi sem nú ríkir. Veiking velferðarkerfisins býður heim háskalegum félagslegum áhrifum umfram það sem kreppan gefur tilefni til. BSRB krefst þess að tryggt verði að aðgerðir til að mæta fjárlagahalla næstu ára komi ekki niður á grunnþjónustu samfélagsins. Frá þeirri kröfu verður ekki hvikað.

---

Kæru landsmenn

1. maí safnast launafólk um allan heim saman, til að leggja áherslu á kröfur sínar um réttlátt samfélag. Við erum ekki ein hér á Austurvelli. Milljónir manna og kvenna standa með okkur í dag. Hver í sínu landi. En þessi fyrsti maídagur ársins 2010 hefur táknræna þýðingu fyrir okkur öll sem búum á Íslandi. Dagurinn okkar í dag er 1. maí í endurreisn heillar þjóðar. Látum þennan dag, 1. maí 2010 marka nýtt upphaf. Upphaf samfélags þar sem manngildi er sett ofar auðsöfnun. Samhjálp ofar einstaklingshyggju. Upphaf þess að heiðarleiki og gagnsæi ráði ríkjum í öllum samskiptum Í samfélagi þar sem hver og einn einstaklingur skiptir máli.

Góðir landsmenn – oft var þörf en nú er nauðsyn - látum þennan 1. maí 2010 verða upphaf að réttlátara samfélagi.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English