Fyrsti fulltrúaráðsfundur vetrarins var haldinn í gær. Formaður félagsins fór yfir stöðu mála nú í upphafi vetrarstarfs, eftir nokkrar umræður um vetrarstarfið mætti gestur fundarins Guðrún Pétursdóttir
á fundinn og kynnti fyrir fulltrúum undirbúning fyrirhugaðs Stjórnlagaþings.
Það er án nokkurs vafa að fyrirhugað þing getur haft veruleg áhrif á mótun samfélagsins á komandi árum og því mjög mikilvægt að við kjósum okkur fulltrúa á þingið, sem mun endurspegla vilja þjóðarinnar. Fram kom í máli Guðrúnar að fulltrúarnir verði á bilinu 25-31 en fjöldinn ræðst nokkuð af því hver aldurs og kynjaskipting fulltrúanna er. Framboðsfrestur til stjórnlagaþingskosninganna rennur út 18. október n.k. Stjórnlagaþingið mun svo koma saman í febrúar á næsta ári.
Þjóðfundurinn sem er verið að bjóða fólki þessa dagana að taka þátt í er undanfari þingsins og verður hann skipaður 1.000 fulltrúum. Á þeim fundi verður kallað eftir meginsjónarmiðum almennings um stjórnskipan og stjórnarskrá. Stjórnlaganefnd mun vinna úr upplýsingum, sem safnast á þjóðfundinum og afhenda stjórnlagaþingi þegar það kemur saman.