Stöðugleikasáttmáli Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, BSRB, Kennarasambands Íslands, SSF, Samtaka atvinnnulífsins, ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Stöðugleikasáttmálinn er gerður við mjög erfiðar aðstæður í efnahags- og atvinnumálum sem bitna hart á heimilum og atvinnulífinu í landinu. Við þessar kringumstæður hafa aðilar þessa sáttmála sameinast um aðgerðir til að vinna þjóðina út úr vandanum.
Markmið stöðugleikasáttmálans er að stuðla að endurreisn efnahagslífsins. Í upphafi viðræðna settu samningsaðilar sér markmið um að í lok árs 2010 verði verðbólga ekki yfir 2,5%, halli hins opinbera verði ekki meiri en 10,5% af VLF, dregið hafi úr gengissveiflum, gengið styrkst og hafi nálgast jafnvægisgengi. Einnig verði vaxtamunur við evrusvæðið innan við 4%. Þannig hafi skapast skilyrði fyrir aukinni fjárfestingu innlendra sem erlendra aðila, auknum hagvexti, nýrri sókn í atvinnumálum og grunnur lagður að bættum lífskjörum til framtíðar.
Aðilar eru einnig sammála um að mikilvægt sé að styrkja stöðu heimilanna, verja undirstöður velferðarkerfisins, standa vörð um menntakerfið og verja störf jafnt á almennum vinnumarkaði sem og hjá hinu opinbera eins og aðstæður frekast leyfa.
Samhliða gerð þessa sáttmála hafa aðilar vinnumarkaðarins sameinast um að eyða óvissu á vinnumarkaði með því að ljúka gerð kjarasamninga sem gilda til nóvemberloka árið 2010, þar sem áhersla er lögð á að styrkja stöðu þeirra tekjulægstu.
Til að ná framangreindum markmiðum hafa aðilar þessa sáttmála sameinast um eftirfarandi:
1. Kjarasamningar
2. Fyrirliggjandi aðgerðaáætlun í ríkisfjármálum
Ríkisstjórnin hefur kynnt samningsaðilum áform sín um aðgerðaáætlun í ríkisfjármálum 2009 – 2013. Mikilvægt er að ná jöfnuði í ríkisfjármálum sem allra fyrst og þá mögulega fyrr en gert er ráð fyrir í sameiginlegri áætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Samstaða er um eftirfarandi fyrir tímabilið 2009 – 2011:
Mikilvægt er að bæta stöðu skuldsettra heimila. Í því skyni mun ríkisstjórnin hraða vinnu ráðherranefndar sem fjallar um stöðu þeirra. Þar verði m.a. lögð áhersla á að tryggja að þau úrræði sem þegar hefur verið komið á gagnist, eins og vænst var. Einnig verði gerðar tillögur í samráði við aðila vinnumarkaðarins um viðbótarúrræði eftir því sem þörf krefur. Þá skal sérstaklega horft til þess hóps sem nýlega keypti sína fyrstu eign.
Jafnframt verði lagðar fram tillögur í samráði við aðila vinnumarkaðarins um það hvernig styrkja megi stöðu lántakenda á fjármálamarkaði.
Ríkisstjórnin mun greiða götu þegar ákveðinna stórframkvæmda sbr. þjóðhagsáætlun, s.s. framkvæmda vegna álvera í Helguvík og Straumsvík. Undirbúningsvinnu verði hraðað vegna áforma sem tengjast fjárfestingu í meðalstórum iðnaðarkostum, s.s. gagnaverum og kísilflöguframleiðslu. Kappkostað verður að engar hindranir verði af hálfu stjórnvalda í vegi slíkra framkvæmda eftir 1. nóvember 2009.
Einnig verði unnið skipulega að úrvinnslu áforma um aðrar stórfjárfestingar í atvinnulífinu þannig að taka megi ákvarðanir sem fyrst um hugsanlegan framgang þeirra.
Ríkisstjórnin gangi til samstarfs við lífeyrissjóði um að þeir fjármagni stórar framkvæmdir sbr. minnisblað vegna verklegra framkvæmda dags. 16.06.2009 o.fl. með sérstakri fjármögnun. Stefnt skal að því að viðræðum ríkisstjórnar og lífeyrissjóða verði lokið fyrir 1. september 2009. Aðkoma lífeyrissjóða að slíkum verkefnum útilokar ekki þátttöku annarra fjárfesta eða lánveitenda, innlendra sem erlendra.
Sveitarfélög og önnur stjórnvöld tryggi að farið verði að tímafrestum við gerð skipulags og allar leyfisveitingar og greitt verði fyrir nýjum fjárfestingum eins og kostur er.
Eigendastefna ríkisins gagnvart bönkunum feli í sér að erlendir aðilar geti eignast meirihluta í einhverjum nýju bankanna og eftir atvikum öðrum fjármálafyrirtækjum. Þannig verði m.a. reynt að tryggja eðlilegan aðgang að erlendu lánsfé fyrir atvinnulíf og heimili. Endurskipulagningu á eignarhaldi bankanna verði lokið 1. nóvember 2009.
Upplýst verði hvernig farið verður með gjaldeyrisjöfnuð bankanna fyrir 17. júlí 2009.
Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins móti sameiginlega viðmið sem fylgt verði við endurreisn atvinnulífsins og aðkomu opinberra aðila að atvinnustarfsemi og eignarhaldi fyrirtækja. Í þessu starfi verði m.a. stuðst við viðurkenndar innlendar og erlendar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja.
7. Hömlur á gjaldeyrisviðskiptiHömlum á gjaldeyrisviðskiptum verði aflétt í áföngum í samræmi við tímasetta áætlun ríkisstjórnarinnar með það að markmiði að koma stöðugleika á gengi íslensku krónunnar. Áætlunin verði lögð fram fyrir 1. ágúst og taki mið af lausn á vanda vegna fjármagnsflæðis úr landi. Leitast verði við að aflétta hömlum á nýrri fjárfestingu fyrir 1. nóvember 2009.
Meðal þeirra leiða sem reynt verði að fara er að erlendir aðilar fái uppgerðar kröfur sínar í krónum á hendur ríki eða Seðlabanka með skuldabréfum til langs tíma í evrum eða öðrum erlendum gjaldmiðlum. Þá verði látið reyna á áhuga lífeyrissjóðanna á að koma að viðskiptum við erlenda aðila sem eiga eignir í íslenskum krónum.
Ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga munu efla samstarf sitt á sviði efnahagsmála og styrkja samræmingu áætlanagerðar og þjóðhagsreikninga hins opinbera búskapar. Ennfremur munu ríki og sveitarfélög eiga með sér aukið samstarf um fyrirkomulag aðhaldsaðgerða og þróun afkomu beggja aðila. Þá verður gengið frá útistandandi skuldum ríkisins vegna húsaleigubóta. Í þeim aðhaldsaðgerðum sem sveitarfélögin standa frammi fyrir munu þau leggja áherslu á að verja grunnþjónustuna og störfin sem kostur er. Ljóst er að í einhverjum tilfellum kunna einstök sveitarfélög að telja þörf á auknum þjónustutekjum en reynt verður að takmarka gjaldskrárhækkanir sem kostur er.
Samband íslenskra sveitarfélaga og aðilar vinnumarkaðarins munu skipa samráðshóp til að fjalla um leiðir til að standa vörð um grunnþjónustu á vegum sveitarfélaga og forgangsröðun í starfsemi þeirra.
Ríkisstjórn, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins munu í sameiningu taka lífeyrismál og málefni lífeyrissjóða til umfjöllunar. Farið verður yfir málin frá grunni án skuldbindinga og fjallað um framtíðarsýn í þessum málaflokki.
Að óbreyttu hvílir sú lagaskylda á sjóðunum að endurskoða fjármögnun þeirra og/eða skerða réttindi sjóðsfélaga. Aðilar eru sammála um að gera ráðstafanir til að unnt sé að fresta slíkum ákvörðunum að sinni á meðan unnið er að heildarendurskoðun.
Aðilar vinnumarkaðarins treysta því að með þessum stöðugleikasáttmála skapist forsendur fyrir því að stýrivextir Seðlabanka Íslands lækki í eins stafs tölu fyrir 1. nóvember 2009 og að þeir og aðrir vextir bankans fari síðan áfram lækkandi. Aðilarnir leggja einnig áherslu á að til að örva hagkerfið, efla atvinnulífið og bæta stöðu heimilanna sé nauðsynlegt að vextir lækki hratt á næstu mánuðum og að vaxtamunur við útlönd verði ásættanlegur.
11. Samstarf um eftirlit á vinnumarkaði og vinnustaðaskírteiniAðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld taki upp virkt samstarf um eftirlit á vinnustöðum og vinnustaðaskírteini í samræmi við bókun ASÍ og SA frá 17. febrúar 2008. Markmiðið með slíku samstarfi er m.a. að tryggja að starfsmenn njóti umsaminna réttinda og vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og misnotkun atvinnuleysisbóta. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir nauðsynlegum lagabreytingum um almennt eftirlit á vinnustöðum og vinnustaðaskírteini.
12. Framkvæmd yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 17. febrúar 2008 og tengd atriðiRíkisstjórnin mun beita sér fyrir eftirfarandi aðgerðum:
Samtök atvinnulífsins viðhalda þeim fyrirvara gagnvart framlengingu kjarasamninga að vinna á vegum ríkisstjórnarinnar um endurskoðun fiskveiðistjórnunar verði í þeim sáttafarvegi sem lagt var upp með við skipan nefndar til þess að vinna að því máli.
14. Framgangur sáttmálans o.fl.Allir aðilar þessa stöðugleikasáttmála samþykkja að vinna að framgangi sáttmálans og annarra brýnna samfélagsverkefna á formlegum samráðsvettvangi ofangreindra aðila auk Bændasamtakanna, undir forystu forsætisráðherra.
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar 17. febrúar 2008