Kosningar í fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar eiga að fara fram á tímabilinu 15.-30. október. Kosið er til tveggja ára í senn. Allir félagsmenn eru kjörgengir til fulltrúaráðs. Þú getur skráð þig hér ef þú vilt bjóða þig fram í fulltrúaráð.
Hlutverk fulltrúa sem er jafnframt trúnaðarmaður er bæði fjölbreytt og áhugavert. Það felst meðal annars í að gæta hagsmuna félagsmanna St.Rv. á vinnustað, miðla upplýsingum bæði til félagsmanna og milli félagsmanna og St.Rv., gæta þess að kjarasamningar séu virtir og aðstoða ef upp koma ágreiningsmál.
Félaginu er skipt upp í starfsdeildir og er starfandi kjörstjórn í hverri deild. Áhugasamir eru hvattir til þess að setja sig í samband við kjörstjórn þeirrar deildar sem þeir tilheyra. SFR
Starf fulltrúa/trúnaðarmannsins felur í sér að:
Þáttaka í félagsstarfinu felur í sér tækifæri til að bæta við sig þekkingu og reynslu á sviði starfsmannamála. Einnig gefur það innsýn í rekstur stofnunar/fyrirtækis og starfsemi stéttarfélaga. Fulltrúum býðst tækifæri til þess að sækja tvö 3ja daga þjálfunarnámskeið þar sem áhersla er lögð á upplýsingamiðlun, réttindi á vinnumarkaði, kjarasamning og leiðtogaþjálfun.
Hefðbundin fræðsla kjörinna fulltrúa og trúnaðarmanna, Samstíga til framtíðar, eru reglulega í boði, en nú þegar hafa verið skipulögð tvö námskeið á haustönn. Námskeiðin eru haldin í félagamiðstöð BSRB að Grettisgötu 89. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna hér. Einnig stendur fulltrúum og trúnaðarmönnum til boða að sækja námskeið sem haldin eru á vegum BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu sem einnig fara fram í félagamiðstöðinn að Grettisgötu 89.