Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar leggur mikla áherslu að að bjóða fulltrúum og trúnaðamönnum upp á vandaða fræðslu svo þeir geti innt skyldur sínar sem best af hendi. Félagið býður fulltrúum og trúnaðarmönnum upp á þriggja daga grunnnámskeið og í framhaldi eru 7 námskeiðslotur sem standa öllum trúnaðarmönnum og fulltrúum aðildarfélaga BSRB til boða. Námsleiðin er í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu.
Námskeið St.Rv. og SFR - tvö námskeið á vorönn 2012
Trúnaðarmönnum St.Rv. er boðið upp á sameiginlegt námskeið Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR. Þetta eru grunnnámskeið sem standa í þrjá daga. Á þessu námskeiði er farið yfir starfssemi stéttarfélaganna, kjarasamningana og lífeyrismál. Auk þess er lögð áhersla á leiðtogaþjálfun þar sem Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson sálfræðingar leiðbeina og þjálfa fulltrúa. Á vorönn 2012 verður námskeiðið haldið í tvígang.
· 1. feb. og 2. feb. kl. 9:15-16:15 og 3. feb. kl. 8:15-16:15 skráning
· 13. mars og 29. mars kl. 9:15-16:15 og 30. mars kl. 8:15-16:15 skráning
Trúnaðarmannafræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu
Trúnaðarmannafræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hófst vorið 2008. Trúnaðarmannanámið er í fimm þriggja daga námskeiðum og einu tveggja daga og er metið til 10 eininga á framhaldsskólastigi. Námskeiðið er í sex þrepum. Í fyrsta hlutanum er lögð höfuðáhersla á vinnumarkaðinn og verkalýðshreyfinguna, störf og stöðu trúnaðarmannsins og samskipti á vinnustað. Í öðru þrepi er starfsemi stéttarfélaga tekin fyrir, vinnuréttur, launaseðlar, launaútreikningar og Starfsendurhæfingarsjóður. Í þriðja þrepi er áhersla lögð á hagfræði, samskipti á vinnustað og tjáningu. Í fjórða þrepi er fjallað um stjórnunarstíla og leiðtoga, einelti, skipulögð vinnubrögð og samningatækni. Í fimmta þrepi er á dagskrá samtalstækni og íhlutun, vinnuvernd, hnattvæðing og fyrirtækjasamningar. Í sjötta þrepi er svo kynning á náms- og starfsráðgjöf og færnimappa talsmannsins. Skráning er í gegnum skráningarkerfi á vef BSRB. Þátttakendur skrái sig í samráði við sitt aðildarfélag. Menn þurfa að búa sér til sitt eigið lykilorð við skráningu. Upplýsingar veitir skrifstofa BSRB í síma 525 8300.
Nánari upplýsingar á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 eða á netfangið bsrb@bsrb.is
Þátttakendur skrái sig í samráði við St.Rv. og sendi afrit af skráningu á jakobina@strv.bsrb.is
Nánar um námið
Trúnaðarmannanám BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu byggir á námsskrám sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur unnið fyrir Félagsmálaskólann. Námsskrárnar heita „Trúnaðarmannanámskeið I" og „Trúnaðarmannanámskeið II" og samanlagt eru þær 142 kennslustundir sem Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi til styttingar náms í framhaldsskóla allt að 11 einingum vali, á kjörsviði og/eða til almennra greina eftir styrkleika viðkomandi.
Námsskrárnar eru gefnar út af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði náms, gera nám gagnsærra og auðvelda styttingu á framhaldsskólanámi. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins gerir kröfur til þeirra sem heimild fá til að nota námsskrá þessa um að þeir framfylgi formlegu gæðakerfi sem FA þróar og viðurkennir. Einnig að framkvæmdaraðili framfylgi skilgreindum kennslufræðilegum kröfum.
Um er að ræða nýtt form trúnaðarmannafræðslu sem tekið var upp veturinn 2008-2009 en það eru metnaðarfull og öflug þriggja daga trúnaðarmannanámskeið skipulögð af BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu (FA). Námskeiðin eru fimm talsins og byggjast upp á þrepakerfi. Þegar trúnaðarmaður hefur lokið þrepi 1 getur hann tekið þrep 2 og svo koll af kolli og eru trúnaðarmenn hvattir til að sækja BSRB/FA námskeiðin. Skráning og nánari upplýsingar.