Minnisblað um fyrirkomulag í fæðingarorlofi
Aðilar eru sammála um að vinna að eftirfarandi fyrirkomulagi á fæðingarorlofstöku starfsmanna:
Einstaklingur:
- Einstaklingur tilkynnir og semur við vinnuveitanda um töku fæðingarorlofs, hvenær það hefst og hvernig tilhögun á því verður.
- Einstaklingur fyllir út sérstakt eyðublað (tilkynningu) þar að lútandi í fjórriti, þar sem vinnuveitandi tekur við sínu eintaki ásamt eintaki fjölskyldu- og styrktarsjóðs og Fæðingarorlofssjóðs. Einstaklingurinn heldur sínu afriti.
Vinnuveitandi:
- Vinnuveitandi framsendir afrit til Fæðingarorlofssjóðs og fjölskyldu- og styrktarsjóðs.
- Vinnuveitandi gerir upp sumarorlofi að loknu barnsburðarleyfi.
- Vinnuveitandi greiðir orlofs- og desemberuppbót í samræmi við kjarasamninga.
- Launagreiðandi ábyrgist lífeyrisskuldbindingar vegna b - deildarfólks.
- Vinnuveitandi sendir fjölskyldu- og styrktarsjóði upplýsingar um launaforsendur m.v. núverandi réttindakerfi (einungis vegna kvenna).
- Vinnuveitandi hefur fullnustað greiðslur í samningsbundna sjóði stéttarfélaganna með framlagi sínu í fjölskyldu- og styrktarsjóð.
Fæðingarorlofssjóður:
- Fæðingarorlofssjóður reiknar út þá upphæð sem greiða á viðkomandi einstaklingi í fæðingarorlofi og greiðir laun samkvæmt lögum um fæðingarorlof.
- Fæðingarorlofssjóður dregur af staðgreiðslu og önnur lögboðin gjöld og stendur skil á þeim, heldur eftir framlagi í lífeyrissjóð og stendur skil á því til viðkomandi sjóðs ásamt mótframlagi.
- Fæðingarorlofssjóður dregur af stéttarfélagsgjald og stendur skil á því til viðkomandi stéttarfélags.
- Fæðingarorlofssjóður sendir fjölskyldu- og styrktarsjóði upplýsingar um greiðslur til einstaklinga (kvenna) í fæðingarorlofi.
24. október 2000