| Styrkir vegna fæðingarorlofs opinberra starfsmanna |
|
Reglum um úthlutun úr Fjölskyldu- og styrktarsjóði BHM, BSRB og KÍ hefur verið breytt þannig að eftir 1. júní verða jafnháar greiðslur til feðra og mæðra úr sjóðnum. Þeir starfsmenn eiga rétt í sjóðinn – jafnt feður sem mæður - sem eru innan vébanda BHM, BSRB og KÍ; eiga börn eftir 1. júní 2007, hafa verið starfandi hjá vinnuveitanda síðustu sex mánuði fyrir fæðingu barns og hafa gildan ráðningarsamning á meðan á fæðingarorlofi stendur. Gert er ráð fyrir 1050 umsóknum á ári ef miðað er við þær forsendur kæmu styrkirnir til með að nema um 170.000 krónum til hvers einstaklings í fullu starfi. Umsækjandi þarf að leggja fram umsókn til sjóðsins á þar til gerðum eyðublöðum. |