Beint á leiðarkerfi vefsins

Hæfnismat

Hæfnismat og leiðbeiningar með hæfnismati

Reykjavíkurborg hefur gert samkomulag við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar um innleiðingu hæfnislauna samkvæmt hæfnismati sviðsstjóra (forstöðumanns). Á grundvelli samkomulagsins hefur nú verið hafinn undirbúningur og kynning vegna innleiðingar á hæfnislaunum sem byggja á hæfnismati skv. ofangreindum kjarasamningum. Hæfnismati á að vera lokið í meginatriðum á tímabilinu 1. - 30. nóvember 2005.

Hæfni starfsmanns á að vera metinn út frá tveimur hæfnisþáttum, starfsmetnaði og sveigjanleika. Með starfsmetnaði er vísað til þess hvernig starfsmaður rækir starf sitt og með sveigjanleika er vísað til aðlögunarhæfni starfsmanns. Nánari leiðbeiningar um hugtök og framkvæmd er að finna að neðan. Hvor þáttur fyrir sig getur að hámarki hækkað laun starfsmanns um 2 launaflokka.

Hæfnismat þetta er fyrsta skref í innleiðingu hæfnismats og hæfnislauna hjá Reykajvíkurborg og er tilraunaverkefni. Samningsaðilar stefna að endurskoða ákvæði um hæfnismat á næsta samningstímabili og miða að því verði lokið fyrir
1. maí 2007.

Starfsmaður getur almennt gert ráð fyrir að hæfnismat og ákvörðun um hæfnislaun skv. samkomulaginu standi til og með 30. apríl 2007. Sviðsstjóri á hverju sviði ber ábyrgð á framkvæmdinni á sínu sviði. Hæfnismat nær til sömu starfsmanna og starfsmat sbr. samkomulag samningsaðila um framkvæmd starfsmatskerfisins SAMSTARF.

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English