Opinberir starfsmenn hafa löngum búið við ein bestu lífeyriskjör sem bjóðast hér á landi. Félagsmenn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar eru engin undantekning frá því. Staða mála er þó sérstök að því leyti að nú bjóðast félagsmönnum fleiri en einn valkostur. Eldri starfsmenn eiga þess kost að vera í Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar en eiga einnig kost á að fara yfir í nýrri sjóð sem er Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga. Félagsmenn St.Rv. eiga margra kosta völ í lífeyrismálum. Því er mikilvægt að menn kynni sér þessi mál rækilega, mun rækilegar en gert verður í stuttu yfirliti hér.
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga
Sjóðurinn er deildarskiptur. A-deildin (almenna deildin) er byggð upp eins og A-deild LSR. Greitt er af öllum launum og réttindi tryggð með iðgjaldi atvinnurekenda. Iðgjaldið sem starfsmaðurinn greiðir er 4% af öllum launum, en atvinnurekandi greiðir nú 11.5%. Það getur hins vegar breyst ef kostnaðurinn við að uppfylla réttindin breytist. Ávinningur samkvæmt réttindum er 1,9% á ári miðað við heildarlaun, makalífeyrir er 50% af framreiknuðum rétti sjóðfélaga. Fullur makalífeyrir er greiddur í 36 mánuði en síðan hálfur í 24 mánuði. Þó er fullur réttur greiddur uns yngsta barn er 22 ára og ef maki er meira en 50% öryrki og yngri en 67 ára við fráfall maka.
V-deildin (valdeildin) er frábrugðin A-deildinnni að því leyti að þar eru réttindin eingöngu tryggð með iðgjöldum og ávöxtun þeirra. Iðgjöldin eru 15,5% af heildarlaunum og greiðir atvinnurekandi 11,5% en sjóðfélagi 4%. Ávinningur samkvæmt réttindum er aldurstengdur þannig að yngri maður ávinnur sér meiri rétt á ári en sá eldri. Starfsmaður á rétt á að ráðstafa iðgjöldum sínum umfram lögbundna lágmarkstryggingavernd, þannig að hann kaupi fyrir þau ellilífeyri, fjölskyldulífeyri eða beini þeim til S-deildar (séreignardeild) sjóðsins. Nýir starfsmenn hjá Reykjavíkurborg byrja í A-deild og verða þar áfram nema þeir velji sérstaklega að breyta yfir í V-deildina. Jafnframt því að greiða sjóðfélögum lífeyri veitir lífeyrissjóðurinn sjóðfélögum lán samkvæmt reglum sjóðsins.
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar
Gamli sjóðurinn, sem rekinn verður áfram fyrir eldri starfsmenn er kjósa að breyta ekki til, tekur áfram eins og verið hefur við 4% iðgjaldi af dagvinnulaunum starfsmanna, en atvinnurekandi sér um að greiða það sem á vatnar til að standa undir þeim réttindum er sjóðurinn veitir. Örorka miðast við áunnin réttindi, nema sannanlega sé unnt að rekja hana til starfsins, en þá tekur gildi svonefndur framreikningur, þ.e. reiknuð eru út réttindi viðkomandi starfsmanns ef hann hefði greitt til sjóðsins til 65 ára aldurs og örorkubæturnar síðan miðaðar við það. Eftirlaun eru verðtryggð með svokallaðri eftirmannsreglu, þ.e. lífeyririnn hækkar með sama hætti og laun eftirmanns hans í starfi. Réttindi aukast um 2% á ári og makalífeyrir er helmingur af áunnum lífeyri að viðbættum 20%. Allt þetta miðast þó eingöngu við dagvinnu.
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga er í Sigtún 42, 2. hæð (við hliðina á Ásmundarsafni), sími: 540-0700
Samkomulag um séreignasparnað
Reykjavíkurborg undirritaði samkomulag um greiðslu viðbótarframlags vegna séreignarsparnaðar 15. desember sl. Samkomulagið nær til félagsmanna í aðildarfélögum BSRB, BHM og KÍ sem hafa gildandi kjarasamning við Rvk. Felur samkomulagið í sér að borgin greiðir af heildarlaunum starfsmanns allt að 2% viðbótarframlag gegn jafnháu framlagi starfsmanns frá 1. janúar 2005. Skilyrði þess að fá greiðslu mótframlags er að starfsmaður leggi til viðbótarframlag og að samkomulag um séreignarsparnað við vörsluaðila liggi fyrir við hlutaðeigandi starfsmann. Bent skal á að nýir samningar um séreignasparnað eiga að vera skráðir inn á viðkomandi launadeildum borgarinnar, en frekari upplýsingar eru veittar þar um framkvæmdina.