Akrakot er á Efri- Reykjum í Biskupstungum. Húsið sem er um 60m² með 12m² svefnlofti. Bústaðurinn samanstendur af anddyri, baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhúsi, 2 svefnherbergjum á 1. hæð og svefnlofti. Svefnpláss er fyrir 9, þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi og fyrir 3 í herbergi niðri og 4 á svefnlofti. Sængur og koddar eru fyrir 10 manns í húsinu. Í eldhúsinu er ísskápur, eldavél með ofni, örbylgjuofni, borðbúnaður og áhöld fyrir 12 manns. Í húsinu er sjónvarp og útvarp.
Við húsið er stór verönd með grillskýli með kolagrilli. Heitur pottur er við húsið. Ágæt grasflöt er við bústaðinn með leiktækjum.
Heimilt er að hafa gæludýr í húsinu.
 |
|
 |
|
 |
|
 |
|
 |
|