Í húsinu er allur búnaður miðaður við átta manns. Örbylgjuofn, sjónvarp og útvarp er í húsinu. Húsið skiptist niður í þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi með sturtu. Í tveim herbergjunum er tvíbreitt rúm og koja þar yfir, en kojur í minna herberginu. Kolagrill og garðhúsgögn eru við húsið. Hjá umsjónarmanni er hægt að fá leigt lín og handklæði, einnig er hægt að fá lánað barnarúm, barnastól og auka dýnur.
Bústaðurinn stendur í Eyjólfsstaðaskógi, göngustígar eru um skóginn. Rekstarfélags Einarsstaða sér um rekstur byggðarinnar og er umsjónamaður bústaðanna á svæðinu er Guðni Hermannsson og er símanúmer hans 8618310, aðsetur umsjónarm. er í húsi nr: 32.
Egilsstaðir eru í ellefu kílómetra fjarlægð frá bústaðasvæðinu, þar er rekin upplýsingamiðstöð ferðamála og hægt að nálgast þar allar upplýsingar um viðburði og afþreyingarmöguleika.
Á Egilsstöðum er mjög góð sundlaug 25 metra löng með vatnsrennibraut og heitum pottum. Einnig er sundlaug á Hallormsstað sem er í 17 km fjarlægð frá Einarsstöðum. Það er margt að skoða á Austurlandi og stuttar vegalengdir frá Héraði á Firðina. Hjá umsjónarmanni er hægt að fá upplýsingarit um orlofshúsin og þar í er að finna fróðleik um Austurlandið,sögufræga staði , söfn og vegalengdir.
http://www.islandsvefurinn.is/landshlutar.asp?lysing=xef&hluti=ef&menu=ef
