Beint á leiðarkerfi vefsins

Úlfljótsskáli

Ráðstefnu- og fundaraðstaða  í Úlfljótsskála  

Í Úlfljótsskála er frábær aðstaða til þess að halda ráðstefnur og fundi, þjónustumiðstöð er vel búin  kennslu- og fyrirlestrabúnaði. Boðið er upp á að kaupa fæði á staðnum, í skálanum er gufubað og sturtur, tækjasalur og setustofa. Aðgengi fyrir fatlaða er gott bæði í þjónustumiðstöð og í einu af þeim tíu  orlofshúsum sem þar eru og hægt er að leigja til gistingar. Nágrenni staðarins er kjörið til gönguferða eða annarar útivistar að loknum vinnudegi. Sími í þjónustumiðstöð 482-2696


Bjartur og skemmtilegur borðsalur


Setustofu upp undir súð þar sem hægt er t.d.  að tefla og lesa bækur


Í kjallara er gufubað og sturtur, sjónvarpsherbergi, leikherbergi með borðtennisborði og billiardborði.


Salnum er hægt að skipta upp í þrjár einingar sem kemur sér oft vel á fundum og vinnudögum hópa

 

 

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English