Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélag íslenska Járnblendifélagsins hafa gert samkomulag um afnot félagsmanna St.Rv. af aðstöðu STJÁ af Þórisstöðum.
Heimilt er öllum félagsmönnum í St.Rv. mökum þeirra og börnum upp að 16 ára aldri, aðgangur að tjaldstæðum í landi Þórisstaða í Svínadal, auk þess er félagsmönnum heimil veiði í eftirtöldum vötnum:
Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni og Eyrarvatni þó er undanskilið svæði K.F.U.M.-manna sunnanvert við Eyrarvatn auk árstubbanna milli vatnanna.
Veiðitími er frá kl. 7:00 til 22:00 til og með 20. ágúst. Frá 21. ágúst er veiðitíminn frá kl. 7:00 til 21:00. Þeir sem nota þessa aðstöðu þurfa að geta staðfest að þeir séu félagsmenn í St.Rv. með vinnutímabókinni eða félagsskírteini.
Upplýsingar um Þórisstaði er að finna hér