|
Þórisstaðir standa við Þórisstaðavatn í Svínadal, stundum einnig nefnt Glammastaðavatn. Þangað er um 4 km. akstur frá Ferstiklu og um 70 km. frá Reykjavík.
Jörðin er í eigu Starfsmannafélags Íslenska Járnblendifélagsins, STJÁ, sem eignaðist hana árið 1990 þegar búskapur var aflagður þar. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á jörðinni síðan til þess að starfsmenn og aðrir gestir geti notið dvalar sinnar þar sem best.
Þar er meðal annars boðið uppá 9 holu golfvöll sem var tekin í notkun árið 1992. auk 9 holu púttvallar. Golfvöllinn er hægt að taka á leigu og einnig má fá golfsett leigð, bæði fyrir karla og konur. Við golfvöllinn hefur fyrrum vélageymslu verið breytt í glæsilegan golfskála eða félagsheimili með sæti fyrir 60 manns, eldhúsi og salernisaðstöðu.
Á jörðinni er stórt og gott tjaldstæði nærri vatninu. Þar er meðal annars boðið uppá fullkomna hreinlætisaðstöðu. Þar hefur einnig verið komið upp skemmtilegum barnaleiktækjum sem ætlunin er að auka við á næstu árum. Á tjaldstæðinu er einnig gott svæði til ýmissa útileikja svo sem knattspyrnu og fleira.
Í Þórisstaðavatni hefur verið stunduð veiði til fjölda ára, hægt er að kaupa veiðileyfi í vatnið á staðnum.
Mjög stutt er í alla þjónustu frá jörðinni. Verslun er að Ferstiklu og sundlaug að hlöðum á Hvalfjarðarströnd ( 4km )
Föst búseta er á Þórisstöðum allt árið. þar sem umsjónamaður jarðarinnar býr ásamt fjölskyldu sinni.
Jörðin er mjög vel sett með byggingar og á veturna eru útihús leigð undir ýmis tæki, svo sem tjaldvagna, hjólhýsi, fellihýsi, bíla, vinnuvélar og fleira. Þá er hún afgirt á alla vegu og hafist hefur verið handa um markvissa gróðurrækt bæði á þjónustusvæðinu sem og á einkalóðum starfsmanna í fjallshlíðinni, sem hugsaðar eru undir sumarbústaði og gróðurrækt.
Eins og fram hefur komið í upptalningunni hér að framan þá teljum við hjá STJÁ, Þórisstaði tilvalinn stað fyrir smærri og stærri hópa að hittast og njóta góðra stunda í fallegu umhverfi lítið eitt út úr skarkala umferðarinnar. Til að mynda er staðurinn kjörinn fyrir alls kyns vinnustaðaútilegur og ættarmót, auk þess sem íþróttahópar hafa þegar á undanförnum 2 árum notfært sér staðinn til samveru og upplyftingar. Þetta gildir auðvitað einnig um einstaklinga og fjölskyldur því allir ættu að geta fundið eitthvað sér til hæfis. Félagsheimilið gefur einnig möguleika á minni háttar ráðstefnum og veislum.
Ef þú óskar eftir frekari upplýsingum getur þú hringt í umsjónamann að Þórisstöðum í síma 433-8975 og 860-6340, eða sent tölvupóst á netfangið skafti@mi.is
|
|