Beint á leiðarkerfi vefsins

Starfsmat

Í kjarasamningi við Reykjavíkurborg frá janúar 2001 var samið um að nota eitt þróað starfsmatskerfi og meta öll störf á vegum Reykjavíkurborgar á sambærilegan hátt af einum samræmingaraðila. Með þessu á að leiðrétta launamun til starfslauna á grundvelli matskerfisins í áföngum og hlúa þannig sérstaklega að þeim störfum sem einungis er sinnt í almannaþjónustu sveitarfélaga.
Greiða átti eftir starfsmatskerfinu frá 1. desember 2002. Þar sem þetta verkefni var mun tímafrekara en samningsaðilar höfðu gert sér grein fyrir þá var ekki hægt að greiða úr svokölluðum starfsmatspottum fyrr en tæpum tveimur árum síðar eða í nóvember 2004. Eigi að síður giltu þær dagsetningar sem samið hafði verið um og fengu þeir sem samkvæmt starfsmati að taka breytingum á launum greitt aftur í tímann.

Starfsmatsnefnd hefur starfað frá upphafi við innleiðingu kerfisins hún er skipuð aðilum frá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, Eflingu - stéttarfélagi og Tæknifræðingafélagi Íslands ásamt fulltrúum borgarinnar. Hana skipa: Ragnar Ólason f.h. Eflingar, varamaður Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Garðar Hilmarsson f.h. St.Rv. varamaður Jakobína Þórðardóttir , Jóhannes Benediktsson f.h. Tæknifræðingafélagsins, varamaður Óli Jón Hertervig og Birgir Björn Sigurjónsson, Kristbjög Stephensen og Snorri Jóelsson f.h. Reykjavíkurborgar.

Fundargerðir starfsmatsnefndar er hægt að nálgast á vef Reykjavíkurborgar:





Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English