Beint á leiðarkerfi vefsins

Almenn kynning á starfsmati

SAMSTARF

Samræmt starfsmat fyrir starfsmenn byggt á starfsmatskerfinu Single Status Job Evaluation sem bresku sveitarfélögin hönnuðu í samstarfi við þarlend stéttarfélög og breska jafnréttisráðið.

Forsaga starfsmats

Starfskjaranefnd Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar ákvað vorið 1998 að endurskoða launakerfi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í samræmi við ákvæði gildandi kjarasamnings og taka upp starfs-, hæfnis- og árangurslaun í áföngum. Starfsmenn samningsaðila gerðu metnaðarfulla tilraun til að búa til séríslenska lausn (HERA) á stuttum tíma, en sérfræðihópur samningsaðila sem hafði það hlutverk að ganga úr skugga um gæði kerfisins réð frá því að kerfið yrði notað. Var þá brugðið á það ráð að taka upp afar einfalda útgáfu af matskerfi til að standa við áðurgerða samninga við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Með kerfinu var unnt að raða störfum til stiga og framkvæma ákveðnar launahækkanir til samræmis við matið og umsamda launapotta. Þrátt fyrir ýmsa vankanta á þessu kerfi var snemma ljóst að fleiri stéttarfélög höfðu áhuga á að innleiða starfsmat fyrir sitt fólk, þ.á.m. stéttarfélög iðnaðarmanna.

Ljóst er að núverandi kerfi St.Rv. er of veigalítið til þess að það geti staðist þær almennu kröfur sem gerðar eru til starfsmatskerfa sem og kröfur um kynhlutlaust mat. Starfsmenn kjaraþróunardeildar hafa skoðað þau starfsmatskerfi sem notuð eru af sveitarfélögum hér á landi, í nágrannalöndum, Englandi og USA. Í samræmi við ábendingar jafnréttisráðgjafa borgarinnar og í samráði við Launanefnd sveitarfélaga, sem hefur 15 ára reynslu af notkun starfsmats, hefur komið í ljós að starfsmat það er sveitarfélögin í Bretlandi nota er ákjósanlegur kostur. Það starfsmatskerfi var hannað með starfsemi opinberra aðila; sveitarfélaga í huga. Auk þess komu breska jafnréttisráðið og jafnréttisráð kynþátta að hönnuninni til þess að tryggja að kerfið væri kynhlutlaust. Þess má einnig geta að Launanefnd sveitarfélaganna mælti með kerfinu í úttektarskýrslu sem gerð var á fjórum starfsmatskerfum og kom út í október 2000.

Breska starfsmatið: Single Status Job Evaluation

Starfsmat bresku sveitarfélaganna, "Single Status Job Evaluation", sem við höfum kosið að kalla Samstarf, var hannað í samvinnu við stéttarfélögin sem hluti af kjarasamningi. Það var tekið í notkun 1997. Starfsmatið nær til allra starfa hjá sveitarfélögunum. Því er ætlað að tryggja að starfsmenn fái laun metin á sömu forsendum óháð kyni eða stéttarfélagsaðild. Þetta starfsmatskerfi er mun umfangsmeira en almennt gerist og tekur tillit til fjölbreyttra starfa. Þrátt fyrir nokkuð umfang er kerfið bæði opið og einfalt í notkun. Reglur um matið eru opinberar og kynntar starfsmönnum. Sama má segja um vægi þátta. Þeim sem vinna við matið ber að kynna sér og fylgja eftir reglum um jafnræði og vinna eftir ákveðnum framkvæmdareglum sem og reglum um meðferð ágreiningsmála og áfrýjun starfsmatsins.

Algeng gagnrýni á starfsmatskerfi er að þau séu dýr í rekstri og óhemju seinvirk í framkvæmd. Því hafði það mikla þýðingu við val á starfsmatskerfi fyrir Reykjavíkurborg að starfsmat bresku sveitarfélaganna er útfært á tölvutæku formi. Matið sjálft, þ.e. spurningar sem lagðar eru fyrir starfsmenn og svör, sem og úrvinnsla gagna úr starfsmatinu, er öll á tölvutæku formi. Kostirnir við þetta er að matið gengur fljótar fyrir sig, öll vinna við matið verður einfaldari, samræmdari og gagnavinnsla, söfnun og geymsla gagna verður einnig einföld og fljótleg. Það er einnig ótvíræður kostur að hættan á mannlegum mistökum eða hlutdrægni verður mun minni þegar unnið er með þessum hætti.

Annar kostur "Single Status Job Evaluation" er sá að ekki er þörf á nákvæmum starfslýsingum til að geta framkvæmt þetta mat. Mikil og tímafrek vinna við endurskoðun og uppfærslu á starfslýsingum hefur oft tafið vinnu við eldri starsfmatskerfi.

Samkomulag um starfsmatið SAMSTARF

Þau stéttarfélög sem þegar hafa samið um að taka upp starfsmatskerfið eru Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Efling- stéttarfélag og Tæknifræðingafélag Íslands og samið hefur verið um að starfsmatið taki gildi þann 1. desember 2002 fyrir þessi félög.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English