Beint á leiðarkerfi vefsins

Um félagið

Skrifstofa St.Rv. er opin alla virka daga milli kl. 9-16.

Starfsfólk skrifstofu St.Rv. sér um daglegan rekstur félagssins. Á skrifstofunni fer fram öll almenn þjónusta og miðlun margvíslegra upplýsinga til félagsmanna. Fyrirspurnir um kjarasamninga og margskonar réttindamál eru mjög umfangsmikill þáttur í starfsemi skrifstofunnar.

Starfsfólk skrifstofu sér um að halda utan um félagaskrá og sjá um skipulag og boðun ýmissa funda á vegum félagsins og skráningu á námskeið. Auk þess gefur starfsfólkið upplýsingar og afgreiðir styrki fyrir Starfsmenntunar- og Vísindasjóð. Bókanir og leigusamningar fyrir orlofshúsin og Úlfljótsskála eru einnig í höndum starfsmanna, svo og fræðslu-, kynningar- og útgáfumál á vegum félagsins.

 

 

undefined

Frá upphafi hefur helsta verkefni St.Rv. verið að berjast fyrir bættum kjörum og atvinnuöryggi félagsmanna.

Á sama tíma hefur baráttan fyrir margs konar réttindamálum einkum farið fram á vettvangi heildarsamtakanna, BSRB.

 

  • A-hluta tilheyra starfsmenn stofnana borgarinnar sem taka laun samkvæmt kjarasamningum St.Rv. við Reykjavíkurborg, Strætó bs og ríkið.


  • Í B-hluta eru starfsmenn sem starfa hjá stofnunum eða fyrirtækjum sem starfa í almanna þágu og hafa verið í eigu borgarinnar, en eru nú rekin af öðrum aðilum. Þeir teljast ekki til opinberra starfsmanna heldur lúta lögum um stéttarfélög og vinnudeilur (08/1938). Því njóta þeir ekki laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna en þeim hafa verið tryggð mörg samsvarandi réttindi í kjarasamningum. B-hluta félagar kjósa sér stjórn og situr formaður í stjórn St.Rv. Félagsmenn í B-hluta eru fullgildir félagsmenn í St.Rv., og geta nýtt sér þjónustu þess á við aðra félagsmenn.

Félagið var stofnað 17. janúar 1926 og voru stofnfélagar 68, þar af einungis þrjár konur. Þessir starfsmenn Reykjavíkurbæjar gengdu margvíslegum störfum, voru lögregluþjónar, hreinsunar- og gasmenn, gjaldkerar og skrifarar svo eitthvað sé nefnt.

Tímarnir hafa breyst og margar stéttir sem áður tilheyrðu St.Rv. hafa stofnað eigin fagfélög, s.s. slökkviliðsmenn, sjúkraliðar, þroskaþjálfar og leikskólakennarar. En þjónusta borgarinnar hefur að sama skapi aukist og í dag eru félagsmenn St.Rv. tæplega fjögur þúsund þúsund, en einn sjötti þeirra eru eftirlaunaþegar. Alls starfa u.þ.b. tíu þúsund manns innan rúmlega þrjátíu stéttafélaga hjá Reykjavíkurborg, en stærsti hópur borgarstarfsmanna er innan St.Rv. Ekki þarf að sækja sérstaklega um félagsaðild, ef starfsmenn eru ráðnir á kjarasamning St.Rv.

Viðsemjendur félagsins eru auk Reykjavíkurborgar; Strætó bs. Orkuveitan sf, Faxaflóahafnir sf, Fjármálaráðuneytið f.h. ríkissjóðs, Akraneskaupstaður, Félagsbústaðir, Skýrr hf, Innheimtustofnun Sveitarfélaga, Leikfélag Reykjavíkur auk ýmissa minni vinnustaða.


 

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English