Beint á leiðarkerfi vefsins

Skrifstofa St.Rv.

Starfsfólk skrifstofu St.Rv. sér um daglegan rekstur félagssins. Á skrifstofunni fer fram öll almenn þjónusta og miðlun margvíslegra upplýsinga til félagsmanna. Fyrirspurnir um kjarasamninga og margskonar réttindamál eru mjög umfangsmikill þáttur í starfsemi skrifstofunnar. Starfsfólk skrifstofu sér um að halda utan um félagaskrá og sjá um skipulag og boðun ýmissa funda á vegum félagsins og skráningu á námskeið. Auk þess gefur starfsfólkið upplýsingar og afgreiðir styrki fyrir Starfsmenntunar- og starfsþróunarsjóð og Vísindasjóð. Bókanir og leigusamningar fyrir orlofshúsin og Úlfljótsskála eru einnig í höndum starfsmanna, svo og fræðslu-, kynningar- og útgáfumál á vegum félagsins. 

Skrifstofan er opin alla virka daga milli kl. 9.00 og 16.00

Húsnæði félaganna að Grettisgötu 89 er rekið af Félagamiðstöðinni. Auk skrifstofa fjölda stéttarfélaga innan BSRB er þar aðsetur Styrktarsjóðs BSRB og starfsendurhæfingarráðgjafa,  Fræðslusetursins Starfsmennt og fundaraðstaða er á þremur  hæðum og kennslu- og fundarsalur er á 1. hæð hússins.

Skrifstofa Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
Grettisgötu 89, 3 hæð
105 Reykjavík
Sími 525-8330
strv@bsrb.is

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English